Amma komin

 Posted by Hákon at 12:18  Blogg  No Responses »
Jan 282012
 

Amman er komin í heimsókn og fékk knús

20120128-131808.jpg

Jan 122012
 
Karen Erla

Karen Erla

Karen Erla er byrjuð að æfa skauta. Hér er mynd af henni á annari skautaæfingunni sinni.

Jan 012012
 

Stjörnuljós

sælar,
Við erum búin að eiga frábært vikulangt jólafrí hér saman og gamlárskvöld var stórfínt. Við átum íslenskan humar, argentískt nautakjöt og heimagerðan ís í kvöldmatinn. Yfir kvöldmatnum strengdum við áramótaheit og kom skemmtilega á óvart hvað krakkarnir voru ákveðin í markmiðasetningu í þetta skiptið. Heitin fara nú ekki á netið í þetta skiptið en kannski ljóstrast upp um þau síðar hér á síðunni.
Svo kíktum við í heimsókn í skaup-partý hjá íslenskum nágrönnum okkar og skemmtum okkur vel.

Fjölskyldan óskar vinum, kunningjum og ættingjum gæfuríks árs.
Hákon og fjölsk.

Gleðileg Jól

 Posted by Hákon at 11:07  Blogg  Comments Off
Dec 252011
 

Gleðileg jól kæru vinir á Klakanum, í Sandkassanum, hér í Svíden og annarsstaðar. Merry Christmas dear friends near and far. God Jul kära nordiske vänner.

Árið er búið að vera viðburðarríkt eins og vanalega. Krakkarnir hafa stækkað um nánast helming og margt um að vera í þeirra lífi. Karen Erla er orðin elst á leikskólanum og hlakkar hún mikið til að byrja í 6 ára bekk. Finnst ekkert spennandi að vera með öllum þessum smákrökkum. Hún hefur æft dans og tennis í haust og ætlar að prófa listhlaup á skautum eftir áramótin í staðinn fyrir dansinn. Hún á nokkrar góðar vinkonur hér í nágrenninu og ekki var amalegt að ein íslensk stúlka flutti í hverfið í haust, þær hafa verið góðar vinkonur frá fyrstu mínútu eftir að þær hittust.

Kári er orðinn duglegri að tala og er farinn að telja uppá 12! Bíladellan er algjör og var hann virkilega sáttur við að fá alla þessa bíla í jólagjöf í gær. Annars er  hann afar hress og glaður gutti. Hann hefur nú æft fimleika í eitt ár og fer á kostum í hverjum tíma, þvílík orka og dugnaður.

Sumarfríið okkar var coverað hér á blogginu í sumar og þar voru 11 lönd lögð að baki. Alma ákvað að hella sér útí skóbransann og opna skóbúð hér í Malmö næsta vor. Við fórum því í reisu í lok nóvember til New York til að kaupa skó. Ferðin gekk mjög vel þar sem nokkur hundruð skópör lágu í valnum. Þetta endaði því með að vera mikið ferðalaga-ár. 11 landa túrinn plús þrisvar til Íslands, einu sinni til USA og svo skaust Hákon bæði til Kosovo og Ungverjalands í vinnuferðir nú í desember. Þetta var þá líklega met ár hjá Hákoni, 16 lönd á einu ári.

Jólaundirbúningur að íslenskum sið

 Posted by Hákon at 21:57  Blogg  Comments Off
Dec 112011
 

Jólasveinninn og fleiri

Þá eru allir að komast í jólaskap. Í gær bökuðum við piparkökur og í dag var svo farið til Kaupmannahafnar á jólaball. Jólaballið var haldið í Íslenska Sendiráðinu og var eins íslenskt eins og hugsast getur; gömlu góðu lögin, tveir jólasveinar og malt & appelsín.

Þegar ballið var búið var svo haldið heim á leið, íslenskum lambahrygg hent í ofninn og byrjað að skreyta piparkökurnar frá í gær.

Ekki laust við að það sé spenna yfir því að fyrsti jólasveinninn komi til byggða í kvöld.

Stefnan hefur verið sett á að skreyta jólatréð á laugardaginn.

Continue reading »

Nokkur hundruð skór í New York

 Posted by Hákon at 20:34  Blogg  Comments Off
Dec 052011
 

Alma aðeins byrjuð að versla. Fyrir utan Macy's með Empire State i baksýn.

New York ferðin var aldeilis fín. Við byrjuðum fyrsta daginn á að versla aðeins í Macy’s sem kom vel út. Við hittum Hemma og Hugrúnu ásamt vinahjónum þeirra í bröns á flottum stað í Tribeca hverfinu sem heitir Bubby’s. Það var þrælfínt og sumir fengu sér Bloody-Mary í fordrykk, sem var borin fram í gömlum sultukrukkum, frekar hipp og kúl.

Svo byrjaði vinnan. Við fórum á nokkra fundi hjá heimsfrægum skóframleiðendum og kynntum okkur vortískuna. Við fengum mjög góðar móttökur og þetta var virkilega gaman. Á miðvikudeginum byrjaði svo skósýningin á Hilton hótelinu sem er hluti af þessari skóviku í borginni. Þarna voru einhverjir 600 framleiðendur af ýmsum stærðum og gerðum. Nokkrir mjög athyglisverðir en margir sem hentuðu okkur ekki. Þegar vikunni lauk vorum við komin með samninga við Brand of the year (Skómerki ársins) og Launch of the year (Flottasta nýja línan) sem samtök skóframleiðenda völdu einmitt í vikunni :)

Eitthvað náðum við nú að kíkja í búðir á kvöldin og borða á ágætis veitingastöðum, frægastur þeirra TAO sem vel er hægt að mæla með.

Flugið heim var á laugardagskvöldi og ætluðum við að kaupa einhverjar jólagjafir á laugardeginum. Greinilega voru “nokkrir” með það sama í huga þannig að dagurinn endaði snemma og við ákváðum að kaupa restina af gjöfunum á netinu. Það var varla hægt að komast hænufet áfram í borginni vegna mannmergðarinnar.

Alma keypti sem sagt nokkur hundruð skópör (eins og vanalega hehe) og nú fer sem sagt allt að verða klárt fyrir opnun á skóbúðinni La Lujo í Malmö næsta vor.

© 2011 Heimasíða Ölmu og Hákonar Suffusion theme by Sayontan Sinha