Thad er búid ad vera fullt ad gera í ad skrá sig í skólann og í tungumálanámskeid og svoleidis. Vid áttum frí á midvikudaginn svo vid ákvádum ad leigja okkur Vespu svo vid geatum rúntad um baeinn. Eina vespuleigan sem vid fundum var í baenum Roquas de Mar sem er um 25 km í burtu. Svo vid hringdum í gaurinn og hann var einmitt í Almeríu med mömmu sinni og vid fengum far med honum. Thegar samningar höfdu nádst settumst vid á farartaekid. Thótti thad frekar vafasamt og hljódid ekki fallegt, en vid brostum bara og thustum af stad. Thegar 20 km voru búnir og vid ordin frekar frosin saman (14 stiga hiti og 15 m/s), birtist Almeria yfir sjóndeildarhringinn. Vid fylltumst sigurvímu en thá skedi thad. Vespan gaf upp öndina!
Vespan hafdi thó vit á thví ad drepast vid einu bensínstödina á svaedinu og vid hringdum í leigusalann. Hann var brjáladur !!! Vid rifumst vid hann og fengum nýtt hjól 5 tímum sídar eftir leigubílaferd heim.
Núna theysumst vid um allt á “nýju” vespunni enda er hún allnokkud skárri thó hún sé ekin 14 thúsund kílómetra af timbrudum ferdamönnum.
Thannig ad í dag og í gaer höfum vid skodad hvern einasta krók og kima í Almeríu, sem hefur bara verid mjög gaman. Helmingurin af thessum götum eru svo thröngar ad Fordinn myndi hvort sem er ekki komast thetta. NB Fordinn kemst bara um adalgöturnar
Ad vísu gleymdum vid myndavélinni í gaer en vid beatum thad upp fljótlega
kvedja frá Spáni,
Hákon og Alma