Vá hvað það er heitt

 Posted by Hákon at 22:47  Blogg  Comments Off
Apr 252005
 

Fórum á ströndina í frímínútum í dag. Vá, thad var örugglega 30 stiga hiti. Allavega svitnadi madur vid thad ad liggja. Thegar tók ad kólna aftur tókum vid hálftíma sprett á línuskautunum. Thad var frekar gaman, thetta var svona LA style.

Sídan er madur maettur í tíma, thad sem their kalla eftirmiddagstíma, tad er frá 19 til 21.

Kv

Hákon

Gleðilegt sumar

 Posted by Hákon at 22:47  Blogg  Comments Off
Apr 242005
 

Lífið okkar þessa dagana er ekki flókið. Við borðum og sofum, förum í skólann og skokkum stundum á morgnana. Þetta er frekar fínt.
Á föstudaginn fórum við til Murcia í verslunarferð. Sama sem ekkert var verslað svo ferðin stóð vart undir nafni. Í staðinn reyndum við að hafa það sem best enda var verið að halda uppá afmælið hennar Ölmu. Hitinn var 28 stig í skugga sem gerði það að verkum að maður var svolítið dasaður. Murcia er eiginlega ekkert góð verslunarborg, né falleg.

Daginn eftir var farið í búðirnar heima og keypt afmælisgjöf :)

Í gær var ekki hægt að fara í sólbað, það var skýjað í fyrsta skipti í mánuð. Í dag er rok, íslenskt rok, þannig að 2 dagar í röð án þess að fara í sólbað !! Vááá, maður fær fráhvarfseinkenni..

jæja biðjum að heilsa í bili
Hákon og Alma

Venjuleg vika

 Posted by Hákon at 22:46  Blogg  Comments Off
Apr 192005
 

Hæ hæ
Hér eru allir hoppandi kátir eins og vanalega. við erum búin að vera frekar róleg í ferðalögunum í bili(já í heila viku) og ætlum að vera hér næstu helgi einnig því það á eitthvað að vera um að vera, eigum bara eftir að þýða textann betur svo við vitum hvað!;) Annars er sólin bara farin að hlýja okkur vel svo við getum nú farið að pakka þessum 2 rafmagnsofnum niður, sem betur fer.
Hákon er eins og vanalega í sínum tímum og maður er skuggalega farinnað sjá fyrir endanum á skólanum, lokaverkefni og … og Alma er með kennslubókina heima og les spænsku. Okkur gengur ágætlega með þessa spænsku en mætti nú alveg ganga betur samt! Við skiljum jú þetta helsta; getum farið í búð og út að borða :)
Vildum annars bara rétt segja hæ hæ
Biðjum að heilsa þeim sem ekki lesa þetta líka:) kveðja í bili Alma og Hákon

Smá fréttir

 Posted by Hákon at 22:46  Blogg  Comments Off
Apr 182005
 

Jæja, þá er bara allt gott af frétta af okkur. Við erum búin að vera frekar hress í vikunni. Það tók nú bara einn dag að ná sér eftir Afríkuferðina og nú er bara alvaran tekin við aftur. Brjálað að gera í skólanum og allt.
Já Hákon er kominn í hópverkefni í Fyrirtækjastjórnun, og samskiptin við 4 spánverja ganga svona upp og ofan. Það verður fróðlegt að sjá hvort við náum að skila 30 blaðsíðna ritgerð og halda 20 mínútna kynningu fyrir bekkinn!
Nú svo trimmuðum við á ströndinni um daginn og okkur fannst það svo gaman að nú er aðal-sportið að vakna snemma (fyrir hádegi) og trimma eftir ströndinni. Það er rosa hressandi og gefur hraustlegt útlit ;)

Við vorum svo að fá skemmtilegar fréttir með að Arna María vinkona Ölmu ætlar að kíkja til okkar í smá “húsmæðraorlof”. Hún kemur til okkar 25.maí og verður í viku. Það verður eitthvað brallað með henni, eflaust mjög skemmtilegt. Frábært Arna ?

Heyrumst síðar,

H & A

Fréttir

 Posted by Hákon at 22:45  Blogg  Comments Off
Apr 112005
 

Hi,
vid vorum ad koma heim úr 4 daga ferdalagi um Marokkó, Gíbraltar og Mótorhjólakappakstur í Jerez. Nánari lýsing á morgun…

H og A

Ein aftur…

 Posted by Hákon at 22:42  Blogg  Comments Off
Apr 062005
 

Þá erum við loksins orðin ein aftur!! Eftir 3 vikur af skemmtilegum gestum jaðrar við tómleikatilfinningu hjá okkur. Golffélagarnir fóru áðan frá okkur heim í slydduna (ef þeir náðu flugvélinni) þannig að við erum ein og yfirgefin…

Við ætlum að fara um helgina í smáferðalag. Stefnan er að kíkja til Cadiz og Jerez og aldrei að vita nema að við Gíbraltar og Marokkó verði á vegi okkar. Annars snýst allt um Moto GP í Jerez á sunnudaginn og verðum við ein af 250.000 áhorfendum á þessari mótorhjólakeppni. júhúú (innsk. Hákon)

Annars er bara gott að frétta…

kveðja,
Hákon og Alma

p.s. tékkið á nýju myndunum okkar !!

© 2011 Heimasíða Ölmu og Hákonar Suffusion theme by Sayontan Sinha