Við erum komin heim !!!
(hægt er leggja inn frjálst framlög á visareikning okkar í Landsbankanum)
Við erum komin heim !!!
(hægt er leggja inn frjálst framlög á visareikning okkar í Landsbankanum)
vid erum i Monaco en lyklabordin a tolvunum herna eru svo faranleg ad vid nennum ekki ad blogga
annars allt gott ad fretta og bloggid kemur inn thegar vid naum ad tengja fartolvuna.
A & H
Jæja, ferðin gekk vel í dag. 963 km á 11 tímum. úff
komin til Reims og maður ratar um göturnar hér eins og innfæddur
kv í bili
H & A
bon djornó,
þá erum við að skoða Ítalíu. Tókum okkur daginn í að skoða Rivíeruna hérna megin frá. Þetta er ágætt. Sérstaklega verðið, allt nánast ókeypis. Jibbí. Pizzan kostar helming á við það sem hún kostar 20 km vestar.
Evrópukappaksturinn er svo á miðvikudaginn. Við stefnum á að kerya 900 kílómetra og gista í Reims (deja vu), svo skila bílnum í Hollandi og fljúga til London. Komum heim á föstudaginn
Ciao
H & A
Við erum búin að vera í góðum málum hérna í 5 daga. Einn daginn fórum við til Mónakó og það var sérdeilis fínt. Við höfum aldrei séð svona mikið af dýrum bílum á rúntinum hvað þá snekkjurnar, þær eru eins og ferjur. Mónakó er mjög falleg en í dýrari kanntinum. Bjórinn aðeins dýrari en á Íslandi, komandi frá Almeríu er þetta algert okur. Sumir hlutir eru 8 sinnum dýrari. Við ætlum svo að fara aftur þangað í kvöld og gambla aðeins í spilavítinu.
Í gær fórum við til Cannes og ekki var minna snobbið þar. Eiginlega meira en í Mónakó. Við trítluðum í allar helsu tískubúðirnar, Chanel, Cartier, Fendi, Luis Vuitton, DG og hvað þetta allt heitir. Frekar óspennandi nema að maður vilji halda svona tískusýningu heima hjá sér, varla hægt að láta sjá sig í mörgum af þessum fötum. Reyndar fann Alma einhverjar töskur og skó sem voru ásættanlegir ![]()
Cannes er reyndar æðisleg og eitthvað fyrir alla. Ríka og Ríkari. Gætum alveg hugsað okkur að vera þar í nokkra daga.
Í dag ætlum við að liggja í leti á sundlaugarbakkanum og fara yfir leikaðferðir kvöldsins í spilavítinu.
Hasta la vista
H og A
Þá erum við loksins komin í frí eftir langan vetur
Við skiluðum íbúðinni á föstudagsmorguninn, gáfum dyraverðinum afganginn af víni hússins, og lögðum í langferð. 840 kílómetrar á 9 tímum nánast án þess að stoppa. Aðeins stoppað til að fylla á og tæma tanka. Komum til Barcelona á föstudagaskvöld um hálf átta. Við tékkuðum okkur inná hótel og ætluðum að labba fyrir hornið og finna veitingastað, við okkur blasti stærsta verslunarmiðstöð sem við höfum komið í. Jafnast á við Mall of America. Alma keypti sér 2 skópör og eina tösku bara af því að það vantaði í safnið… Við settumst síðan niður og fengum okkur að borða. Reyndar stóðum við því við fórum á snittubar. Þrælsniðugt, flottar snittur og tapasréttir sem maður afgreiddi sig sjálfur og borgaði bara eftir fjölda tannstöngla. Góður stemmari.
Við sváfum vel og lengi vitandi að það var auðveldur dagur framundan, bara 330 km. Fyrir 4 mánuðum frétti Alma af verslunarkjarna rétt fyrir utan Barcelona og hefur verið með hann í sigtinu síðan þá. Þangað fórum þangaðvið í hádeginu og eyddum þar 4 tímum og nokkrum krónum.
Ferðinni var haldið áfram, yfir Pyreneafjöllin, og ekki stoppað fyrr en í Montpellier í Frakklandi. Þegar við nálguðumst landamærin fór að rigna í fyrsta skipti síðan í febrúar. Við vorum fljót að átta okkur á því að þetta var einfaldlega Spænska heimsveldið að kveðja okkur með tárum. Það var frekar skrítið að keyra yfir landamærin og átta sig á því að yfirgefa “landið okkar”. Samt eiginlega gekk þetta skringilega yfir. Þegar við komum útúr bílnum í Barcelona blasti við okkur gjörólíkt fólk en í Almeríu. Allt öðruvísi klætt og talaði allt öðruvísi. Þetta var svipað og Reykjavík vs. Fáskrúðsfjörður eða Blöndós vs. London. Þetta var eiginlega hálfgert menningarsjokk! Þegar við komum svo yfir til Frakklands áttuðum við okkur á því hvað við vorum orðin góð í spænskunni. Við skyldum engan og enginn skyldi okkur þó svo við kynnum að segja “grasías” og “búnos días”
Sunnudagurinn rann upp bjartur og fagur, takmarkið var að aka 350 km leið til Monaco á “útsýnis” hraða. Það tókst bara nokkuð vel. Rivíeran var þrædd og hver smábærinn tók við af öðrum. Þetta er alveg eins og maður ímyndaði sér; snekkjur, villur og sportbílar á hverju horni. Ég held að maður geti alveg sóað 10 dögum hérna….
Kv
H og A