Að flytja

 Posted by Hákon at 12:31  Blogg  Comments Off
Nov 262005
 

Við fluttum í gær allt dótið okkar. Nokkuð góð mæting var í flutningana og vil ég þakka þeim sem mættu og þeim sem reyndu. Þetta gekk fljótt og vel fyrir sig. Við fórum þó 3 ferðar og þetta tók um 2 klukkutíma. Léttu veitingarnar léttu manni svo lífið eftirá.
Rafmagnið var nú eitthvað að stríða okkur og mætti Jói rafvirki og komst að því að það hafði verið dísel vararafstöð í húsinu í gamla daga. Frekar frumlegt. Allavega þarf að gera einhverjar smálagfæringar og þá verður þetta í góðu lagi. Allavega var gott á fá rafvirkja með svona stuttum fyrirvara.

Kvöldið í kvöld verður þá það fyrsta í nýja húsinu og verður sofið út í fyrramálið. Allavega til 10.

Fullt að gerast

 Posted by Hákon at 23:27  Blogg  Comments Off
Nov 172005
 

jæja, þá erum við búin að leigja út íbúðina. Allt í gúddí. Við fórum í innkaupaferð í dag að skoða ísskáp og þvottavél. Það virðist ætla að koma þokkalega út.
Þorri fékk bílinn sinn loksins í dag, þ.a.l. fengum við líka kerru og fleira dót sem við ætlum að nota í janúar. Þetta vakti mikla hrifningu á heimilinu og mátti líkja þessu við jólin hjá Ölmu.
10 kassar af dóti fóru líka í nýja húsið þannig að flutningarnir fara smátt og smátt fram….

Flutningar framundan

 Posted by Hákon at 22:09  Blogg  Comments Off
Nov 152005
 

Þá er loksins kominn dagur á flutninga. Við ætlum að flytja inn á Hraunbrautina þann 26. nóv. Þannig að þetta eru bara 11 dagar.
Við fengum 30 kassa í dag, þannig að líklega fer ég að pakka þegar Judging Amy er búið.

Takið daginn frá

later…

Góður dagur

 Posted by Hákon at 21:24  Blogg  Comments Off
Nov 122005
 

Allt gekk vel í húsinu í dag. Leiguíbúðin var þrifin hátt og lágt og kom einn væntanlegur leigjandi að skoða. Á efri hæðinni var smíðað utanum ísskápinn og það verður málað á morgun. Ætli stofan verði ekki máluð í heild sinni bara á morgun.
Ég þurfti aðeins að prófa arininn aftur, það var svo mikið til af parketafgöngum ;) Það kom helv… mikill blossi og smá lag af sóti í arinstofuna. Þetta var allavega skemmtileg tilraun

5 dagar í röð

 Posted by Hákon at 20:57  Blogg  Comments Off
Nov 112005
 

það er erfitt að vakna á morgnana. Allavega stundum. Nú er ég búinn að vakna klukkan hálf-sex 5 daga í röð. Það er erfitt. Enda sofnaði ég á stofugólfinu í nýja húsinu seinnipartinn í dag.
Annars braut ég 3 spegla í dag. Samtals 15 fermetrar eða 50 kíló af speglum! Ég hef fulla trú á að þetta boði 21 árs hamingju og heppni.

later,
H

Nýjar myndir

 Posted by Hákon at 22:23  Blogg  Comments Off
Nov 102005
 

Við settum inn nokkrar myndir af húsbyggingu. Smellið á vefalbúmið okkar hér til hægri. Ef þið vitið svo um einhvern sem vantar 70 fermetra íbúð til leigu þá bjallið í okkur ;)
Annars hefur Þorri verið sá eini sem hefur gert eitthvað í húsinu undanfarna daga, en það verður góð törn tekin um helgina.

© 2011 Heimasíða Ölmu og Hákonar Suffusion theme by Sayontan Sinha