Jólin langt komin

 Posted by Hákon at 1:01  Blogg  Comments Off
Dec 312005
 

jæja, þá er maður búinn að éta yfir sig af keti og smákökum. Nú tekur við snakk og bjór. Við verðum með fjölskyldurnar í mat á gamlárskvöld, alls 14 manns og einn kalkúnn. Maður er bara orðinn spenntur, þetta verður líklega bara skemmtilegt.

Gleðileg jól

 Posted by Hákon at 14:28  Blogg  Comments Off
Dec 242005
 

Hóhóhó, gleðileg jól og takk fyrir árið sem er að líða. Vegni ykkur vel á nýja árinu

Sælar

 Posted by Hákon at 23:05  Blogg  Comments Off
Dec 202005
 

nú er jólastressið að ná hámarki. Við þurfum að fara að leita að jólagjöfunum inní bílskúr, en þær voru flestar keyptar fyrir löngu síðan. Við erum frekar róleg á þessu og allt nánast tilbúið, búið að skreyta jólatréið og alles.
Við fórum í mæðraskoðun í morgun og allt í góðum málum hjá okkur þremur. Þannig að nú er sléttur mánuður í atburðinn.

schools out

 Posted by Hákon at 12:16  Blogg  Comments Off
Dec 132005
 

þá eru prófin búin, eða prófið ölluheldur. Þá getur maður farið aftur í það að hengja upp gardínur ;)

Prófannir

 Posted by Hákon at 3:01  Blogg  Comments Off
Dec 122005
 

Nú erum við unglingarnir í prófum. Þetta er nú ekki svakaleg törn í þetta skiptið enda aðeins eitt próf. Þetta ætti nú að fara að klárast, þá getur maður einbeitt sér að því að klára að flytja og undirbúa svo jólin.

Skólinn

 Posted by Hákon at 22:50  Blogg  Comments Off
Dec 102005
 

Hi Hi
Nú er ég að nýta tímann meðan Hákon er í tíma, já hann byrjaði kl 19.00-21.00. haha ekki er ég viss um að þessi tímasetning myndi virka í HÍ. Annars er allt gott af okkur ad frétta. Við erum búin að mæla okkur mót við José í turninum hér í Almería á morgun. Ekkert mál að koma og skoða og sagði að vísu að best væri að koma á morgun því þá ætti að vera smá umferð!! Okkur hlakkar nú til að sjá hana, við höfum lítið orðið vör við flugvélar síðan við komum hingað. Já þannig að kl. 9.00 verðum við mætt á svæðið, spurning hvort Hákoni líki staðurinn og sæki um vinnu? allt kemur í ljós á morgun.
Þangað til næst,
Kv. Alma

© 2011 Heimasíða Ölmu og Hákonar Suffusion theme by Sayontan Sinha