….eða næstum því. Við unnum Rússa
Íslendingar heimsmeistar
staðan í EM á móti Rússum er 10 – 5 fyrir Ísland. Maður er bara stolltur !
Vonandi heldur þetta áfram….
Nú er stelpan okkar orðin vikugömul. Allt gengur vel að okkar mati. Hún er farin að stækka og taka á sig svip. Þannig að við erum í tómri lukku.
Litla skvísan okkar fékk áðan heimsókn frá ljósmóður eins og undanfarna daga. Í þetta skiptið þurfti hún að taka smá blóðsýni úr hælnum á henni, eitthvað í sambandi við skjaldkirtilinn ofl. Raddböndin voru þanin í botn og grenjað í örfáar sekúndur, svo algert hljóð, gert í buxurnar og var svo sofnuð innan 2 mínútna. Maður vorkenndi henni nú helling við að fá svona nál á viðkvæman stað en hún stóð sig eins og hetja
H
Eva og Gummi
Eva og Gummi eignuðust strák í dag. Við óskum þeim innilega til hamingju með guttann.
Magnað að við 3 sem vorum saman í hóp í Reikningshaldi eignumst öll barn í sömu vikunni !!!
Afmæliskveðjur
Við óskum Erlu (mömmu Ölmu) hjartanlega til hamingju með daginn. Hafðu það gott í dag Erla.
Hákon og Alma
