Ég hélt uppá sumarkomuna í gær með því að taka út mótorhjólið. Fórum við Þorri, Gunni, Þröstur, Palli Melsted í smá motocross. Þetta var feykilega gaman og menn komu öflugir undan vetri. Við keyrðum í heilan dag í lítilli leynibraut og óhætt að segja að það er farið að votta fyrir harðsperrum í kallinum….
Komið sumar
Þá er það orðið ljóst að undirritaður er að færa sig um set í bransanum. Fljótlega mun ég hefja störf í Flugturninum á Reykjavíkurflugvelli. Þetta er spennandi tilbreyting og komin bara nokkur tilbreyting að takast á við.
Annars er litla skvísan að þroskast og dafna með hverjum deginum, hún er farin að brosa breitt og sýnir góðar framfarir.
Mánaðarafmæli
Það er allt á fullu hjá litlu fjölskyldunni þessa dagana. í dag er mánaðarafmæli og tíminn flýgur áfram, bæði líður þetta hratt og svo er líka rosalega mikið búið að gerast. Litla skvísan er byrjuð að æfa brosið og er æðislegt að fylgjast með því. Svo er bara verið að kíkja í heimsóknir og hitt og þetta. Í dag ætla mæðgurnar að kíkja til Dóru en þær þurfa þá að fara að vakna…. klukkan orðin hálftólf
Fyrsta partýið
Við skruppum í matarboð hjá Gunna í gærkvöldi. Þetta var afmæli/Eurovisonparý og var þrælfínt. Litla skvísan okkar kom með og stóð sig ágætlega en lét hafa svolítið fyrir sér. En allavega var gaman, það tók svo 2 tíma að ná henni niður eftir djammið….
Þá er stelpan okkar orðin rúmlega þriggja vikna gömul og henni dafnar bara nokkuð vel. Við erum búin að fara með hana í labbitúr núna 3 daga í röð og hún virðist njóta þess mjög vel, allavega sefur hún fast í vagninum hvert sem farið er. Reyndar sefur hún alltaf þegar hún er á ferðinni, hvort sem er í bílnum, vagninum eða á röltinu. Hún vill ekki vera kyrr. Hún fór reyndar í pössun í dag til þegar við Alma fórum í jarðarför. Báðar ömmurnar þurfti til en hún var þæg eins og engill.
Þetta þýðir líka það að fæðingarorlofið klárast fljótlega. Frekar svekkjandi. Það er nefnilega þrælgott að vera svona heimavinnandi húsfaðir. Svona er þetta bara.
Annars er nóg að gera í skólanum líka, stórt verkefni og lokaritgerð í bígerð. Svo er það ræktin, alltaf í ræktinni….
Fullt af gestum
Jæja, við erum búin að fá fullt af gestum uppá síðkastið. Einnig erum við búin að fara með litlu skvísuna í heimsóknir hingað og þangað… Núna erum við meirað segja að leggja í fyrsta göngutúrinn með hana. Þetta er náttúrulega veðrið til þess. Eitthvað af myndum eru komnar á vefalbúmið.
sjáumst,
Hákon
