Síðasta vaktin

 Posted by Hákon at 13:51  Blogg  Comments Off
Mar 312006
 

Þá er síðustu vaktinni minni í KEF lokið. Nýja starfið tekur við á mánudaginn í turninum í Reykjavík.
Ég vil þakka vinnufélögunum fyrir skemmtilegt samstarf í gegnum árin og auðvitað á ég eftir að heyra í þeim fljótlega.

Gúddbæ Sunny KEF.

ekki mikið fyrir stafni

 Posted by Hákon at 13:06  Blogg  Comments Off
Mar 292006
 

maður er bara að komast uppúr veikindunum og er bara mest heima við þessa dagana. Bíða eftir að vorið komi.

veikur

 Posted by Hákon at 15:33  Blogg  Comments Off
Mar 242006
 

kallinn er bara veikur heima þessa dagana. Helv..kvef. Annars er búið að vera mikill gestagangur hjá okkur. Frænkur Ölmu komu um daginn og frænkur mínar í gær. Full hús báða dagana. Litla skvísan okkar átti einmitt 2 mánaða afmæli í gær.

Blogg

 Posted by Hákon at 9:09  Blogg  Comments Off
Mar 212006
 

maður er nú frekar lélegur að blogga. Ég veit ekki hvort það sé afsökun að það sé búið að vera mikið að gera, það er eiginlega mótsögn, því þeim mun meira er að gera er meira að segja frá!!
Annars er búið að vera nóg að gera í skólanum, að skila verkefnum, gera skattskýrslur, á Verk og vit sýningunni með Plúsmínus bræðrum og svo hefur einhver vinna læðst inn líka.

helgin

 Posted by Hákon at 12:22  Blogg  Comments Off
Mar 142006
 

Helgin var fín hjá okkur. Föstudagurinn og laugardagurinn fóru í mótorhjólanámskeiðið hjá mér og svo á sunnudaginn fórum við í skírn til Gatla og Möggu og þau skírðu drenginn Kolbein Óla, eða Kóli Gatlason.
Mánudagurinn átti að fara í afslöppun og útréttingar en það var hringt í mig klukkan 0615 og ég rekinn í vinnuna á einhverja vakt sem ég var búinn að steingleyma :(
Nú er bara törn í skólanum framundan svo þetta klárist nú einhverntíman

Trial námskeið

 Posted by Hákon at 16:55  Blogg  Comments Off
Mar 102006
 

Í morgun fór ég í bóklegt próf í turninum í Reykjavík og það gekk bara vel. Eftir það var haldið á trial námskeið (klifurhjól) í gryfjum við áburðarverksmiðjuna. Steve Colley margfaldur meistari í klifri sýndi okkur hvernig á að gera þetta og var gríðar gaman. Meira á morgun :)

© 2011 Heimasíða Ölmu og Hákonar Suffusion theme by Sayontan Sinha