Mikil sorg ríkir hjá mér þessa stundina. Var að horfa á fréttir og sá að tvær af helstu menningarstoðum landsins eru að leggja upp laupana. Danshúsið í Glæsibæ og DV.
Hvar endar þetta?
Þorri búinn að finna fjölina
Þorri hefur nú verið þekktur fyrir að rúnta um á alvöru motocross tvígengis tækjum. Nú er maður farinn að hafa áhyggjur af kallinum. Er hann búinn að finna sig á nýjum stað ??
Sjá mynd
Myndir úr skírninni
Loksins segja sumir. Eftir að hafa farið yfir einhverjar 400 myndir sem teknar voru í skírninni er búið að setja þetta niður í 170 bestu. Þær eru komnar á vefalbúmið okkar.
Kærar þakkir til Binna og Frigga fyrir að taka allar myndirnar. Magnað að eiga þetta allt frá tveimur sjónarhornum.
Hákon
Sjaldan bloggað
Sjaldan bloggar maður. Síðan í skírninni hefur fátt gerst. Stórafmæli í gær, svaka fínn kokteill.
Annars er ég að fara að hella mér í ritgerðina. Klára þetta hratt og örugglega.
Karen Erla er nafnið sem dóttir okkar fékk í skírninni í gær. Karen Erla Hákonardóttir. Skírnin gekk mjög vel að okkar mati og var góð mæting og skemmtileg stemmning.
Takk kærlega fyrir okkur, hlýleg orð og veglegar gjafir. Takk.
Myndirnar koma fljótlega
Skírnin nálgast
Þá stendur undirbúningur fyrir skírnina sem hæst. Við erum búin að ákveða nafnið og nú er verið að kaupa í kökurnar og svo framvegis.
Fyrsta vikan liðin í turninum og gekk bara vel. Þetta leggst vel í mig.
