Farin

 Posted by Hákon at 8:29  Blogg  Comments Off
Jun 302006
 

við erum farin norður í Aðaldal. sjáumst fljótlega….

Fyrsti plásturinn

 Posted by Hákon at 23:56  Blogg  Comments Off
Jun 262006
 

Karen Erla fór í 5 mánaða skoðun í dag. Hún var 7,19 kg og 65,5 cm, þannig að hún heldur sínu striki á meðaltalskúrfunni. Svo fékk hún sprautu með bóluefni og sinn fyrsta plástur. Hún grét bara smávegis og horfi með fyrirlitningarsvip á hjúkkuna en það var svo stutt í brosið aftur.

Seinnipartinn fékk hún svo heimsókn frá Agnesi Gígju frænku sinni sem er 8 mánaða og kann að sitja. Karen Erla varð auðvitað að herma eftir stóru frænku sinni og sýndi glæsileg tilþrif og náði að sitja í tæpar 2 mínútur…þannig að þetta er allt að koma

Sumarið er tíminn

 Posted by Hákon at 11:30  Blogg  Comments Off
Jun 202006
 

Karen Erla stækkar og stækkar. Hún er orðin miklu duglegri í að velta sér og farin að fylgjast betur með hljóðum og hreyfingum. Henni finnst skemmtilegast að skoða sjálfa sig í spegli þannig að ekki vantar egóið.
Ég er farinn að bíða spenntur eftir að komast í sumarbústaðinn í Aðaldalnum en nú eru 10 dagar í þetta. Vonandi að það verði sól og blíða.

Nóg að snúast

 Posted by Hákon at 23:13  Blogg  2 Responses »
Jun 142006
 

Þessa dagana er nóg að snúast. Ég er á kafi í vinnu og svo er bara eins og venjulega nóg við að vera hjá fjölskuldunni. Ég er bara farinn að hlakka til að fara í bústaðinn í lok mánaðarins. Vondandi verði líka komið sumar þá

Afmæli

 Posted by Hákon at 14:37  Blogg  Comments Off
Jun 072006
 

Berglind systir á afmæli í dag :D Hjartanlega til hamingju

Allt á fullu

 Posted by Hákon at 21:03  Blogg  Comments Off
Jun 052006
 

Þá er maður að ná sér eftir skólatörnina sem stóð yfir í 5 ár. Þetta gekk víst allt eftir og brautskráningin verður 24.júní. Spennufallið er að líða hægt og rólega yfir. Nú situr maður og vinnur sig niður úr bunkanum á skrifborðinu, það var smá sem fékk að sitja á hakanum…. Ég er meirað segja búinn að slá garðinn (myndir væntanlegar)

© 2011 Heimasíða Ölmu og Hákonar Suffusion theme by Sayontan Sinha