Fjölskyldan hennar Ölmu hittist í hádeginu í dag og gekk frá Kaldárseli í Valaból. Um 30 manns mættu og var gaman að trítla þessu skemmtilegu leið. Þar var svo nestið snætt og farið í nokkra leiki áður en haldið var heim aftur. Ferðin hófst í rigningu en brakandi blíða var þegar komið var tilbaka. Nokkrar hraustar dömur sem fannst ekki taka því að fara heim fóru á Helgafellið þegar göngunni var að ljúka.
Seinnipartinn fórum við í tveggja ára afmælið hans Breka og síðan í kvöldmat á Hraunbrúnina. Góður dagur
