Bústaður

 Posted by Hákon at 10:30  Blogg  Comments Off
Aug 312006
 

Nú stefnir allt í að við förum í bústað í dag og framá sunnudag. Spáð er góðu veðri og fínerí. þannig að gott verður að taka smá sælu í sveitinni

Eiður stimplar sig inn

 Posted by Hákon at 10:54  Blogg  Comments Off
Aug 292006
 

Var að horfa á leikinn Celta – Barcelona í kvöld. Eiður Smári kom inná þegar 15 mín voru eftir þegar staðan var 2-2. Eiður skoraði á 88.mínútu með glæsilegu skoti eftir að hafa sólað einn varnarmann uppúr skónum. Glæsileg frammistaða hjá kappanum og vonandi fyrirboði á það sem koma skal.

Einnig var snilld að horfa á leikinn í óbeinni útsendingu. Gaupi tók gamla takta frá því Bjarni Fel var að lýsa vikugömlum leikjum á níunda áratugnum. Tær snilld.

Latur

 Posted by Hákon at 21:02  Blogg  Comments Off
Aug 282006
 

Gott að vera kominn í frí.
Við fórum í svakalega humar og nautakjötsveislu til Hemma og Hugrúnar á föstudaginn og sannaðist enn og aftur að Hemmi er allgóður kokkur.
Á laugardaginn tók ég svo ársskammtinn af golfi. Spilaði 28 holur, 18 á Akranesi og 10 í Grafarholti. Þetta var einni holu of mikið, því ég leiddi seinna mótið eftir 9 holur en klúðraði feitt á þeirri seinustu :(
Sunnudagur og mánudagur hafa svo farið í hinar ýmsu útréttingar

Síðasta vaktin

 Posted by Hákon at 21:21  Blogg  Comments Off
Aug 222006
 

neinei, ég er ekki hættur. bara að fara í mánaðar feðraorlof :)

Motocross og menning

 Posted by Hákon at 13:06  Blogg  Comments Off
Aug 202006
 

Ég tók mig til og skráði mig í motocross keppni um daginn. Keppnin var haldin við Grindavík í gær og skemmti ég mér þrælvel. Eftir að hafa tekið frí frá motocross keppni í 3 ár var svolítið erfitt að koma sér að stað aftur, ég fór þó á nokkrar æfingar síðustu vikur til að reyna að ná einhverju aftur. Þetta tókst allavega og ég komst í mark heilu á höldnu enda með mikinn stuðning frá tengdafjölskyldunni sem mætti í öllu sínu veldi ásamt Ölmu og auðvitað Karen Erlu. Ég endaði í 16 sæti í B-flokki sem hefði kannski mátt vera aðeins betra, en ég fékk allavega útrás :)

Þegar heim var komið og búið að dusta af sér mesta rykið fórum við í bæinn á menningarnótt. Kannski vorum við fullseint á ferðinni því við sáum ekki margt. Óperu-aríur á Klambratúni, BrainPolice á Dillon og flugeldasýningu. Góð blanda.

Ef það segir eitthvað um hvernig Karen Erla verður þegar hún verður stór, þá svaf hún á motocross keppninni og á flugeldasýningunni en vaknaði þegar óperusöngurinn var.

Styttist í feðraorlofið

 Posted by Hákon at 23:48  Blogg  Comments Off
Aug 162006
 

Undirbúningur er í hámarki fyrir feðraorlofið sem heldur áfram í næstu viku. Ég hef verið að minnka við mig í vinnu svo sjokkið verði minna. Ég hef tekið nokkrar motocross æfingar á frídögunum mínum til að liðka mig aðeins. Til stendur að keppa í einni keppni á laugardaginn til halda við réttindinum ef svo má segja. Spennandi.
H

© 2011 Heimasíða Ölmu og Hákonar Suffusion theme by Sayontan Sinha