Gott í Búlgó

 Posted by Hákon at 7:59  Blogg  Comments Off
Sep 302006
 

Lífið í Búlgaríu er þrælgott. Við erum búin að skoða margt og gera margt. Sveitin er falleg og við verðum í Sofia frá sunnudegi fram á þriðjudag.
Kær kverðja,
Hákon

Er hægt að sofa standandi?

 Posted by Hákon at 23:25  Blogg  Comments Off
Sep 242006
 

Já svo virðist vera. Karen Erla svaf standandi nóttina fyrir 8 mánaða afmælið sitt. Alma kom að henni um miðja nótt í standandi í rúminu sínu, steinsofandi. Snilld :)

Skrítnar fréttir

 Posted by Hákon at 21:02  Blogg  Comments Off
Sep 202006
 

Í fréttunum í Ríkissjónvarpinu í gærkvöld var fordæmd að myndband af slagsmálum fyrir utan Háskólabíó hafi komist í dreifingu á netinu, samt sýndu þeir myndbandið.
Í fréttum á Stöð 2 í kvöld var talað um að falsaðar nektarmyndir af konu Tiger Woods væru komnar í dreifingu. Myndirnar sem voru þokkalega dónalegar voru sýndar í fréttunum.

Hvernig stendur á því að fréttamenn dreifa slíkum sora? Það væri kannski fréttnæmt að fjalla um sorann en hvers vegna að hjálpa til við að dreifa honum??

Sep 192006
 

Með hverjum deginum sem líður verður hæfileikinn meiri og meiri. Karen Erla er farin að standa upp sjálf við stóla og borð. Hún skríður útum allt og nú er hún orðin klár í að setjast aftur niður eftir að hafa staðið upp. Nú þurfum við líka að fara að læsa öllum skápum því hún opnaði fyrsta skápinn sem hún sá og fór að rífa út gamlar hljómplötur

CBR 600

 Posted by Hákon at 17:07  Blogg  Comments Off
Sep 172006
 

Binni kom í heimsókn og leyfði mér að prófa Honda CBR-600-RR sem hann á. Magnað.

Ég ætla út í kvöld

 Posted by cremasterinn at 20:30  Cremasterinn  Comments Off
Sep 152006
 

Cremasterinn mun vera í bænum í kvöld. Passið ykkur og dætur ykkar…

© 2011 Heimasíða Ölmu og Hákonar Suffusion theme by Sayontan Sinha