Scorsese kemur aftur

 Posted by Hákon at 14:07  Blogg  1 Response »
Oct 312006
 

Fór í bíó um daginn. Sá The Departed sem Martin Scorsese leikstýrir. Er þetta einhver besta mafíumynd sem ég hef séð. 3 tímar af tærri snilld. Scorsese hefur ekki gert jafn góða mynd frá 1990 er hann gerði GoddFellas og svo 1980 Raging bull. Jack Nicholson vinnur óskarinn fyrir þetta en hann hefur ekki leikið eins vel síðan í Gaukshreiðrinu, meira’ð segja er Leo DeCaprio að leika fantavel í henni, svo og Mark Wahlberg leikur frábæran karakter.
Mæli með henni fyrir þá sem þola smá blóðslettur á hvíta tjaldið.

Hvalaskoðun

 Posted by Hákon at 12:01  Blogg  Comments Off
Oct 292006
 

Við fórum í Hvalaskoðun í gær. Hvalur 7 var að koma með langreyði að landi í Hvalfirði og við vorum á staðnum ásamt um 200 manns. Gaman var að sjá flykkið komast á land og sjá hvernig þetta er verkað. Góð skemmtun, 4 af 5 stjörnum.

Heimavinnandi húsfaðir

 Posted by Hákon at 15:39  Blogg  Comments Off
Oct 232006
 

Nú er Karen Erla orðin níu mánaða :D Til hamingju með afmælið litla dúlla.
Þá er Alma farin afur að vinna og loksins fæ ég að vera einn með dótturinni. Þetta er frábært. Við bara tvö að chilla. Snilld.

Björninn sterkur á heimavelli

 Posted by cremasterinn at 20:29  Cremasterinn  Comments Off
Oct 132006
 

Björninn tók pottinn í gær eftir fremur langdregið einvígi við Stóra-Kláus.  Árni gafst upp undir morgun, en aðrir spilarar höfðu þá fyrir löngu yfirgefið bjarnarhýðið.  Önnur helstu tíðindi kvöldsins voru að hinn geðþekki Rafael, sigurvegarinn frá því í síðasta mánuði, datt út fyrstur og svo að Biskupinn glataði niður öruggri forystu líkt og venjulega.  Það verður að hrósa Birninum fyrir að hafa unnið í annað skipti eftir að hafa farið all-in snemma í spilinu.

Staðan á peningalistanum eftir gærkvöldið:

Bjössi    +16000
Rabbi     +4000
Konni           0
Þórólfur    -1.000
Haukur    -3.000
Árni    -8.000
Binni    -8.000

…sinn vanagang

 Posted by Hákon at 22:12  Blogg  Comments Off
Oct 052006
 

Lífið gengur aftur sinn vanagang eftir feðraorlofið. 30 dagar af quality time. Dóttir mín er farinn að þekkja mig mun betur en áður, þó hún sé enn háð nærveru mömmu sinnar. Þetta er búinn að vera skemmtilegur mánuður. Nokkur stutt ferðalög innanlands, ferð til Spánar og svo óvænt ferð til Búlgaríu í sveitasæluna.
Við vorum í skíðaþorpinu Bansko í Búlgaríu og nutum okkar vel. Mikil uppbyggingin er í landinu og boltinn er farinn að….

Continue reading »

© 2011 Heimasíða Ölmu og Hákonar Suffusion theme by Sayontan Sinha