Ríkisstjórnin er að klúðra hlutafélagavæðingu RÚV rétt eins og Flugmálastjórnar. Nýjasta útspilið hjá þeim er að koma með málamiðlunina um takmarkaða auglýsingasölu RÚV. Þvílík vitleysa. Hverju á það að skila? Ef menn sæju lengra en einn leik fram í tímann þá yrði kannski barn úr þessu. Takmörkuð sala auglýsinga er líklega hugsuð sem bót fyrir einkarekna fjölmiðla að auglýsendur kaupi af þeim vegna þess að auglýsingarnar hjá RÚV séu uppseldar. Hvað með neytandann? Myndir þú kíkja á fréttirnar á ruv.is eða mbl.is þegar þú veist að mbl.is er 85% þakið bannerum og auglýsingum að reyna að selja þér greiðslufrest eða skuldir, eða á ruv.is þar sem fréttirnar eru ómengaðar? Myndir þú hlusta á útvarpsstöð þar sem talað er í sífellu um að þátturinn sé í boði SS pylsa (innan um 20 mínútur af auglýsingum á klst) eða bara á þægilega músik í boði RÚV?
Auglýsandinn kaupir ekki auglýsingar á einkarekinni stöð vegna þess að enginn er að hlusta þar.
Aðeins eitt svar er til við þessu klúðri: Selja RÚV
Ég held að Árni Johnsen og Jón (framsóknarformaður) ættu að reka PR fulltrúann sinn. Þeir hljóta að vera með sama náungann í vinnu við að semja fyrir sig ræður. Glæsilegur starfskraftur, fann upp frasann “Tæknileg mistök” og tönglast á honum aftur og aftur. Hann ætti að lesa blöðin eða að fá utanaðkomandi álit á starfi sínu. Þetta er ekki að ganga nógu vel hjá þér vinur.
Hákon
