Jólin

 Posted by Hákon at 9:04  Blogg  Comments Off
Dec 262006
 

Jólin hjá okkur eru búin að vera hreint frábær. Á aðfangadag fórum við í hádegismat á Hraunbrúnina og svo fórum við á rúntinn með pakka. Við borðuðum svo hátíðarmatinn hjá Ásgeiri og Erlu í Garðabænum. Frábær matur og yndisleg jól. Karen Erla naut sín vel á fyrstu jólunum og skemmti sér vel við að opna pakkana og að leika sér við þá, óopnaða. Eftir eftirréttina (btw. afinn fékk möndlugjöfina) þá fórum við í Hafnarfjörðinn aftur og fundum þar fjölskylduna og nokkra óopnaða pakka. Karen Erla vakti allan tíman enda skemmtilegur félagsskapur og ómögulegt að missa af einhverju, hún sofnaði fyrr en um klukkan 1 í rúminu sínu ;)

Á Jóladag vaknaði skvísan auðvitað klukkan 7 eins og venjulega og hélt sinni rútínu bara áfram. Lagði sig á milli 9 og 2 !! Þá drifum við okkur í heimsókn til langömmu hennar og svo í jólaboð hjá Ómari frænda og Sigrúnu. Þar var margt um manninn og dansað í kringum einiberjarunn. Alltaf gaman að ganga í kringum jólatréið en núna gerðist eitthvað óvænt….jólasveinn birtist öllum að óvörum í glugganum og gægðist inn um gluggann. Honum var hleypt inn og reyndist þetta vera gluggagægjir og gaf hann börnunum mandarínur og epli.

Um kvöldið fórum við svo í matarboð hjá Þóru og Halli sem var ákaflega ljúffengt og skemmtilegt.

Nú er annar í jólum og stefnan sett á að slappa aðeins af fyrir matarboðið í kvöld….

Hákon

Skötuveisla í hádeginu

 Posted by Hákon at 20:24  Blogg  Comments Off
Dec 232006
 

Við buðum nokkrum í skötuveislu í hádeginu. Sökum þess hve skata er bragðvond og lyktin hryllileg ákváðum við að hafa síld og annað góðgæti á borðum. Úr varð hin skemmtilegasta veisla og góður stemmari svona rétt fyrir jólin.
Takk fyrir okkur.
Hákon

Dec 202006
 

Fórum í Bónus í dag. Keyptum kalkún. 10,5 kíló. Ætti að duga ;)

Dec 182006
 

Cremasterssynir og Cash-arar tóku höndum saman og brugguðu jólaglögg. Mætt var í sendiráðið og spilafíknin sá til þess að lítill tími væri nýttur í kjaftæði. Hebbi var settur í spilarann og sest var við dúkað borðið. Spilaður var SvartiBaldur a.k.a. BlackJack (þýðing: Greinarhöfundur). Menn voru misjafnlega tregir að komast inní geimið en svo reyndist þetta hin mesta skemmtun. Peningastaflarnir voru fljótir að ferðast á milli spilamanna og gjaldþrot gerðu vart við sig. Björninn þurfti snemma að moka inn meira fé og líkaði hinum það vel. Kannsli tók gamla strippbúllu-trixið á þetta og mætti með dollara en það dugði skammt. Þeir voru allir hirtir af honum. (hann reyndi líka “hella-niður-trixið”)
Á endanum var borgað út þegar Bizki átti bróðurpartinn af flögunum, þó áttu C og Meistarinn nóg fyrir leigara.
Ku þetta vera fyrsti potturinn sem Bizki sér eitthvað af en svo skemmtilega vill til að þetta telst ekki á peningalistann þar sem um framhjáhald var að ræða. Hann vermir því botnsætið þar enn um stundir.

Viss söknuður mun eflaust myndast hjá mönnum þar sem flutt verður í nýtt húsnæði á nýja árinu. Mikil og góð gestrisni Bjarnarins mun í minnum höfð, vonandi heldur hún áfram. En eflaust verða umræðurnar pólitískari og beittari á nýjum stað þar sem ekki verður þetta eilífa buzz í eyrunum á manni!

Vil ég hér með óska Cremasterssonum gleðilegra jóla og farsældar á komandi póker-ári.

el maestro

p.s. RB mætti nú alveg uppfæra peningalistann en ljóst er að ég mun taka sætið hans Bjössa að ári liðnu.

Jólatré veitt

 Posted by Hákon at 23:09  Blogg  Comments Off
Dec 162006
 

Kiddi og Karó buðu okkur að koma í veiðitúr með sér í dag. Við fórum í skóg í Borgarfirðinum og veiddum okkur jólatré. Þetta var hin mesta skemmtun og góð útivera. Frostið var um 12 stig en blankalogn og heiður himinn gerðu þetta að fallegum vetrardegi. Karen Erla var nú orðin svolítið rauð á nebbanum eftir daginn ;)
Myndir eru komnar á vefalbúmið.

Jólaföndur

 Posted by Hákon at 8:05  Blogg  Comments Off
Dec 132006
 

Nú í fæðingarorlofinu er mikið föndrað. Við fjölskyldan erum í því alla daga að föndra eitthvað, myndir, skreytingar og fleira. Næst á dagskrá eru jólakortin en jólagjafirnar eru flestar komnar í hús og hinar skammt undan. Jólatréð verður svo fundið um helgina og svo fer nú að styttast í þetta.

© 2011 Heimasíða Ölmu og Hákonar Suffusion theme by Sayontan Sinha