Mótaröðin hélt út fyrir mörk siðmenningarinnar í gær og var Hraunbrautin áfangastaður spilara kvöldsins. Árni og Þórólfur létu ekki sjá sig og hljóta þar með heiðurinn að verða fyrstu spilararnir sem beittir verða sektargreiðslum næst þegar þeir mæta. Úrslit komu annars ekki á óvart. Mannætan Björn Ægir sigraði örugglega eftir stutt einvígi við húsráðanda. Rafael endaði í þriðja sæti, Der Berliner varð númer fjögur og Biskupinn rak lestina og gat einbeitt sér að messuvíninu það sem eftir lifði kvölds. Hann verður by the way bílstjóri í næsta spili sem stefnt er að halda í syndabælinu Kópavogi 8. febrúar nk. Takið daginn frá.
Alls 2007 2006 Spil Sektir
Bjössi 29.000 8.000 21.000 6
Konni 5.000 -2.000 7.000 6
Þórólfur -1.000 0 -1.000 4 1.000
Rabbi -3.000 -2.000 -1.000 7
Haukur -5.000 -2.000 -3.000 3
Árni -10.000 0 -10.000 5 1.000
Binni -15.000 -2.000 -13.000 7