Gunni vinur minn gerði sér lítið fyrir og átti afmæli í dag konudaginn. Hann bauð nokkrum valinkunnum aðilum í kvöldverð í gærkvöldi sem var hinn ágætasti. Eftir máltíðina, júróvisíon og létt spjall, skelltum við strákarnir okkur á Nasa á Evróvisíon ball. Mikið stuð var á ballinu og troðfullt af fólki. Flott kvöld hjá kallinum, sem einmitt er orðinn dirty-two.
Konudagurinn
Sameiginlegt
Við Karen Erla eigum eitt sameiginlegt. Uppáhaldssjónvarpsþátturinn okkar beggja er The Simpsons. Þetta er reyndar eini sjónvarpsþátturinn sem hún nennir að horfa á, lengur en í 20 sek. Hún nær stundum 5 mínútum. Ég næ líka 5 mínútum þá er þátturinn truflaður og allt í steik.
Hákon
Síðustu dagar
Undanfarnir dagar hafa verið alveg týpískir. Síðasta laugardag fór ég á Húsavík og var tímavörður á snjósleðakeppni, sem var þrælgaman. Ég þurfti að drífa mig í bæinn því mikil árshátíð var á dagskránni. Allt small þetta saman á síðustu stundu og tímasetningarnar góðar. Við skemmtum okkur svo konunglega á árshátíðinni.
Svo hefur vikan farið og einhverju leiti í brúðkaupsundirbúning svo þetta er bara búið að vera fínt.
Hákon
Globalization.. in the nation
Vettvangur febrúarspilsins var Byrgið í Kópavogi. Árni komst í hóp sigurvegara með afar snjallri fléttu og eiga nú aðeins Biskupinn og Kanzlarinn eftir að upplifa sigurtilfinninguna. Fyrir áhugasama má geta þess að innihaldsefnin í outsourcingfléttu Claessen’s eru gsm sími, hjúkkubúningur, bjór, Bjóri og leðursvipa.
Biskupinn tryggði stöðu sína á botninum enn frekar en annars er listinn svona:
Alls 2007 2006 Spil Sektir Meðaltal
Bjössi 27.000 6.000 21.000 7 3.857
Konni 3.000 -4.000 7.000 7 429
Árni 2.000 12.000 -10.000 6 1.000 333
Þórólfur -3.000 -2.000 -1.000 5 1.000 -600
Rabbi -5.000 -4.000 -1.000 8 -625
Haukur -7.000 -4.000 -3.000 4 -1.750
Binni -17.000 -4.000 -13.000 8 -2.125
Húsavík á morgun
Ég þarf að skreppa til Húsavíkur á morgun og vera tímavörður á vélsleðakeppni. Spennandi
