Ég var að fá mér Blackberry síma. Spurning hvort þetta sé tæki til að svala netfíkninni eða halda manni tengdum við umheiminn? Ætli svarið sé ekki sambland af báðu. Jú maður nær að skoða tölvupóstinn sinn, sem í flestum tilvikum má bíða þar til “á eftir”. En heimasíður er erftitt eða ómögulegt að skoða, þær verða allar afskræmdar nema hjá allra flottustu fyrirtækjunum sem gera sérstakar heimasíður fyrir svona síma.
Ókosturinn við þessa græju er stærðin, hún er tvöfalt stærri en gamli lúni gemsinn minn. Einnig er stjórnborðið frekar ruglingslegt og skrunhjólið sem stjórnar öllu þarfnast þjálfunar.
Svo ætlaði maður að horfa á sjónvarpið í græjunni eins og Vodafone er búið að vera að auglýsa, en ég get ómögulega fundið það, en fann í staðinn nýjasta hringitóninn á síðunni þeirra. það er jólalag…
