Heldur betur góð byrjun á grillsumrinu. Í beinu framhaldi af síðustu færslu náðum við 3 grillum á 2 dögum í bústaðnum… er ekki komið nóg???
Þrisvar á tveim dögum
3 dagar í röð
Eins og vanalega á vorin er grillið mikið notað. Nú eru komnir 3 dagar í röð og nýtingin 100%. Við ætlum að kíkja í sumarbústað um helgina þannig að líklega verður 100% grillnýting áfram þó svo við notum annað grill….
Grillið komið út
Ég sótti grillið í bílskúrinn í gær. Sól og blíða í hádeginu en svo kom auðvitað rok og rigning seinnipartinn. Maður lét það ekki stoppa sig og grillaði lambafile og með því. Bara ágætt þó ég segi sjálfur frá.
Skógarhögg
Við ákváðum að choppa niður eins og 3 grenitré úr garðinum hjá okkur. Nágranni minn kom með vélsögina og í valnum lágu um 100 kíló af trjám. Nú er útsýnið betra.
Hún Alma mín átti afmæli í gær. Við buðum náskyldum ættingjum í brunch í hádeginu sem heppnaðist bara nokkuð vel að mínu mati. Allavega vildi ég bara nota tækifærið og óska henni aftur til hamingju með daginn
Nýjar myndir
4 ný albúm eru komin á vefalbúmið okkar
