Helgin var ljómandi góð hjá mér. Við byrjuðum á að fá nýju Opex skrifstofuna afhenta
á föstudaginn þannig að fyrirtækið heldur áfram að stækka. Ég náði ekki alveg að klára að mála og bera inn húsgögn því ég þurfti að drífa mig uppá Hvanneyri þar sem Berglind systir var að útskrifast sem B.S. í búvísindum. Við fórum í athöfnina í Reykholtskirkju og kaffiboð á Hvanneyri. Stelpan stóð sig þrælvel og er rétt að byrja. Til hamingju prófið Berglind.
Um kvöldið fórum við fjölskyldan með Berglindi á Hereford og skemmtum okkur bara rosalega vel.
Á laugardagsmorgun þegar ég var að fara útúr dyrunum að mála seinni hlutann af skrifstofunni blasti við rúta fyrir utan heima. Ég hugsaði um leið…er Beggi að mana mig í hjólatúr?? en svo var víst ekki. Rútan var full af strákum sem tóku mig í heljarinnar steggjun.
Dagurinn var þrælskipulagður og þrælskemmtilegur, við förum ekkert nánar útí það hér. Takk kærlega fyrir mig drengir.
Sunnudagurinn var reyndar ekkert sérstakur. Rok og rigning.
kv. Hákon