Meirihlutinn með valdníðslu

 Posted by Hákon at 23:24  Blogg  Comments Off
Aug 132007
 

Meirihlutinn í bæjarstjórninni hér í Kópavoginum er alveg að missa sig þessa dagana. Þeir eru tilbúnir að breyta hinu, rólega, friðsæla og fallega Kársnesi í stórskipahöfn og bílaborg. Þeir vilja byggja mörg þúsund manna byggð á landfyllingum yst á nesinu og beita brellibrögðum við að koma þessu í gegnum kerfið. Enginn vill í raun sjá þetta hverfi nema gjaldkeri bæjarsjóðs og nokkrir verktakar sem ætla sér að mata krókinn.

Hverfið sem um ræðir er svakalega stórt hverfi byggt útí sjó en þeir fegra það með því að þeir ætli að hreinsa til í iðnarðarhverfinu sem er nú yst á nesinu. Það er gott og blessað að hreinsa þar til en það þarf ekki að byggja 8 blokkir á landfyllingu þar fyrir utan. Rökfærslur þeirra eru hreint út sagt hjákátleg. Tökum dæmi

“Pláss er fyrir viðbyggingar á lóðum Kársnesskóla” NEI

Aukning bíla á Kársnesbraut úr 8.200 bílum í 19.000 á sólarhring. NEI TAKK

4 ljósastýrð gatnamót. NEI TAKK

Þeir auglýsa hverfin sem laus við hljóðmengum frá Reykjavíkurflugvelli. HAHAHAAAHHAHAHA

Varðandi 29 húsin sem verða við hættumörk í hljóðmengun (yfir 65dB) þá kemur þessi frasi: “Ýmsar lausnir til mótvægis koma til greina og verða þær skoðaðar íhverju tilfelli fyrir sig ” Sem þýðir: EKKERT VERÐUR GERT

Gunnar Birgisson bæjarstjóri í Kópavogi sagði í fréttum Sjónvarpsins að nóg pláss væri fyrir 3000 manna byggð og nóg pláss í skólum og leikskólum bæjarins. Hvernig stendur þá á því að dóttir mín kemst ekki inná leikskóla? Er hún ekki nógu góð fyrir þá? Borgum við ekki nóg í skatta?

Kæru bæjarfulltrúar, sýnið kjark og farið að vilja þeirra sem kjósa ykkur. Setjið fram skipulag þar sem tekið er til í iðnaðarhverfinu og í staðinn komi annar samsvarandi iðnaður eða lágreist íbúðabyggð. Það er engin þörf á stórskipahöfn á höfuðborgarsvæðinu.

Vinnuhelgin mikla

 Posted by Hákon at 20:49  Blogg  Comments Off
Aug 042007
 

Það er nú ekki mikið sumarfríið sem við hjónin fáum um helgina. Við erum hreinlega að vinna útí eitt. Sjáumst aldrei nema þegar við afhendum Karen Erlu hvort öðru á vaktaskiptum… þetta er aðeins of mikið :(

© 2011 Heimasíða Ölmu og Hákonar Suffusion theme by Sayontan Sinha