Brúðkaupsferð til Svíþjóðar

 Posted by Hákon at 11:37  Blogg  Comments Off
Sep 102007
 

Við hjónum fórum til Svíþjóðar í brúðkaup um helgina…svokölluð brúðkaupsferð ;)

Karólína, frænka Ölmu var að giftast Ítalanum Ludovigo og var brúðkaupið í Smálöndunum sænsku þaðan sem mamma Karó er frá. Þetta var tveggja daga prógram og svaka gaman. Byrjað var á föstudagseftirmiðdegi með sýningu á glerblæstri í bænum Kosta þaðan sem frægar Kosta Boda vörur eru frá. Þar var kvöldmatur og herlegheit. Svo var kirkjuathöfn á laugardeginum og margrétta máltíð og ball á herragarði í nágrenninu. Í veislunni komum við 8 saman frá Íslandi og svo fólk frá Ítalíu, Kenýa, Bahrein, Bandaríkjunum, Svíþjóð osfrv

Við náðum að skoða aðeins Stokkhólm á fimmtudeginum og fórum svo keyrandi niður í sveitina… alls keyrðum við 900 km á þessum fáu dögum og var það aðeins of mikið. Við vorum þó heppin að hafa pantað okkur flug heim frá Gautaborg fyrir algjöra tilviljun. Fluginu frá Stokkhólmi var nefnilega aflýst og við hefðum orðið strandaglópar ef við hefðum farið þangað.

Til hamingju með brúðkaupið Karó og Ludo og megin gæfan leika við ykkur. (heimasíðan þeirra)

MXON

 Posted by Hákon at 23:38  Blogg  Comments Off
Sep 042007
 

Nú er undirbúningur fyrir Motocross of Nations í algleymi. Við erum að fara út eftir 9 daga….

Ágúst búinn

 Posted by Hákon at 23:26  Blogg  Comments Off
Sep 032007
 

Eftir mikla vinnutörn í upphafi ágúst mánaðar náðum við að skreppa í nokkrar stuttar ferðir þegar leið á. Við fórum í fjölskylduferð þar sem 45 af ættingjum Ölmu komu saman yfir helgi og skemmtu sér saman.

19. ágúst fórum við á Vestfirðina í tæpa viku og var það svakalega fínt. Rólegheit og bláber. Karen Erla kunni vel við það að sjá hestastóð fyrir utan eldhúsgluggann á hverjum morgni og byrjaði hún að syngja einn daginn þar. Hún reyndar byrjaði að syngja “hann á afmæli í dag” þann 22.ágúst….frekar spúkí.

Svo komum við í bæinn til að fara í brúðkaupið hjá Birni Rúnari og Hildu sem var í Iðnó og var gott stuð á ættinni.

Við fórum svo í sólarhringsferð á Fjallabak á mánudeginum til að skoða landið og heimsækja Gunna skálavörð. það var fínn bíltúr og alltaf gaman að fá náttúruna beint í æð. Frábær gönguferð, veiðiferð, útsýni, sól, úrhellisrigning, miðnæturdalalæða, þoka, torfærur, pikknikk, grillmatur, rauðvín og KFC allt á einum sólarhring eða svo.

Ég fór í golf 30. ágúst og spilaði lélagasta hring ferilsins hingað til.

Við förum svo í brúðkaup til Svíþjóðar um helgina :)

svona er þetta bara…

© 2011 Heimasíða Ölmu og Hákonar Suffusion theme by Sayontan Sinha