Mikið rosalega er ruslpóstur stórt vandamál í nútímasamfélagi. Ég var að þurrka út um 200.000 rusl-athugasemdir við myndaalbúmin og bloggin okkar í fjölskyldunni. Þetta er fyrir utan ruslpóstinn sem kemur í pósthólfin… þau eru um 100 á dag. Fljótt að safnast upp. Þetta tekur líklega stóran hluta af sæstrengsumferðinni þetta drasl.
Leikskólinn
Þá er Karen Erla orðin sátt við leikskólann. Búinn að vera í 3 heila daga (8-14) og líkar bara vel. Hún hefur náð að leggja sig í hádeginu og er dottin í þessa rútínu. Hið besta mál. Alma er svo komin í foreldrafélagið bara svo hún geti aðeins haft puttana í þessu. Mér skilst að þeim vanti jólasvein fyrir jólin
Annað er fátt að frétta, maðúr rúntar bara á LandCruiser þar til nýji limminn kemur á þurrt.
Fátt um að vera
Karen Erla er búinn að vera með hita nú í 6 daga í röð. Hún hefur farið yfir 39 stig alla þessa daga og hefur mælst hæst 39.7 ![]()
Greyið stelpen er orðin svolítið leið á þessu og hundleið á að hanga inni svona lengi. Þetta er nú eitthvað að skána og vonandi verður hún hitalaus í dag og fer svo í leikskólann aftur á morgun.
Annars er bara verið að bíða eftir nýja bílnum sem fór í skip í dag
Sú litla bara veik
Þegar sú stutta var loksins komin á skrið í aðlöguninni er hún orðin lasin….
Að aðlagast skólanum
Karen Erla er í óða önn að aðlagast skólanum. Hún þurfti aðeins meiri tíma en maður bjóst við, til að venja sig við að öryggið sem pabbi og mamma veita er horfið. Svolítið erfitt að hafa engan sem hún þekkir nálægt sér, ekki einu sinni ömmu eða afa.
En nú er þetta allt að koma og hún orðin ein af hópnum á Marbakka.
Við erum annars að bíða eftir nýja bílnum sem við keyptum í staðinn fyrir Fordinn….spennandi
Djöfullinn danskur
Djöfullinn danskur, þ.e. helvítið hann Addi, er kominn til landsins og byrjaður að hirða fé af íslenskri æsku. Hann sýndi gríðarlega yfirvegun í spili gærkvöldsins og fór heim með pottinn eftir magnað double penetration í lok spils. Árni og Kanzlarinn fengu síðastir að kenna á danska refsivendinum sem tekur stórt stökk upp peningalistann og státar af glæsilegu meðaltali. Peningalistinn lítur annars svona út:
Alls 2007 2006 Spil Meðaltal
Bjössi 36.500 15.500 21.000 10 3.650
Rabbi 13.500 14.500 -1.000 13 1.038
Addi 11.000 11.000 0 2 5.500
Beisi -2.000 -2.000 0 1 -2.000
Benni -2.000 -2.000 0 1 -2.000
Ísi -2.000 -2.000 0 1 -2.000
Árni -4.500 5.500 -10.000 9 -500
Þórólfur -5.000 -4.000 -1.000 6 -833
Konni -6.000 -13.000 7.000 11 -545
Haukur -11.000 -8.000 -3.000 6 -1.833
Binni -28.500 -15.500 -13.000 13 -2.192
