Það er ekki mikið bloggað á þessum bænum í jólamánuðinum. Síðan síðast hefur ýmislegt gerst.
Jólaglögg pókerfélagsins Cash var haldið 8.des. Mikið var stuðið þar til ég braut jaxl á jólahlaðborði. Reyndist vera hagl í gæsasteikinni.
Karen Erla tók þátt í að baka hálfmána með þremur öðrum ættliðum af beinum kvenlegg. Karen Erla, Alma, Erla og Guðrún fóru á kostum.
Fjölskyldan kom saman og málaði á piparkökur…krakkarnir höfðu þolinmæði í 6 mínútur en gamla fólkið dundaði sér við þetta í 2 klukkutíma.
Vinir og kunningjar mættu í sérstakt pókermót á afmælisdaginn minn þar sem heiðursgestur var James Bond og afhenti hann verðlaun í lokin.
Afmælisdagurinn var líka nokkuð sérstakur að öðru leiti en ég skrifaði undir samning um nýja vinnu
Jólin voru svo hefðbundin og skemmtileg. Við fengum margar góðar gjafir og Karen Erla fékk líka mikið af glæsilegum leikföngum. Við vorum að koma einmitt úr boði þar sem systkini pabba og afkvæmi þeirra koma saman og var fín mæting. Pétur í Kanada kom ekki og Berglind systir var lasin.
Nú hangir maður bara fyrir framan imbakassann og fiktar í 96 stöðvum af ADSL sjónvarpinu nýja…vá hvað það er mikið af rusli í gangi hehe
Gleðilegt nýtt ár,
Hákon
