Við fórum í skíðaferð bæði á laugardag og sunnudag… kannski ekki beint skíðaferðir en þó eitthvað. Þetta byrjaði með snjóþotuferð í Skálfell á laugardaginn í frábæru veðri. Við tókum undir okkur stærstu brekkuna sem var ný þjöppuð eftir snjótroðara en ekkert fólk var í brekkunni. Það voru mörg hundruð manns í fjallinu en við þarna nokkur saman á snjóþotu í bestu brekkunni alein hhahaha ég tók öryggið úr rafmagnstöflunni í stólalyftunnni muhahahahhaaaa. Nei, annars þá var lyftan biluð og við ein í brekkunni. Fjölskyldan hennar Ölmu kom þarna saman og voru örugglega 30 manns í ættarkaffi í skaflinum.
Á sunnudeginum fórum við svo á gönguskíði í Bláfjöllin á meðan Karen Erla fékk aðeins meiri útrás á snjóþotunni. Það var gaman að prófa þetta en vonandi verðum við öll fjölskyldan á svigskíðum á næsta vetri, aðeins of snemmt fyrir 2 ára adrenalínsjúkling að fara á skíði
