Tveir í liði

 Posted by Hákon at 20:55  Blogg  Comments Off
May 262008
 

Flestir bílar bæjarins voru með gíróseðil undir rúðuþurrkunni í dag. Engir sénsar voru gefnir og líklega metdagur hjá Bílastæðasjóði. Galvaskir sumarstarfsmenn voru mættir til starfa og voru þeir nú með kennara með sér á göngu milli bílastæða. Afköstin voru gríðarleg og minnti þetta helst á þá sem dreifa flyer-um fyrir utan skemmtistaði í útlöndum. Tveir og tveir gengu þeir saman
og sá eldri benti á einhvern bíl og sá yngri tók upp pennann.

Skondið að fylgjast með þessu og sem betur fer sleppti ég að leggja uppá kanti og valdi löglegt bílastæði fyrir 150 kall klukkutímann.

© 2011 Heimasíða Ölmu og Hákonar Suffusion theme by Sayontan Sinha