Eintóm blíða

 Posted by Hákon at 18:11  Blogg  Comments Off
Jun 242008
 

Stórmerkilegt veður á klakanum uppá síðkastið. Búið að vera heiðskýrt og sól í 10 daga í röð og fátt útlit fyrir breytingu. Maður er farinn að venjast þessu smátt og smátt þó svo í undirmeðvitundinni býst maður alltaf við skýjabakka og rigningu eftir klukkutíma.
Fór í golf á laugardaginn þar sem var 15 stiga hiti og logn í morgunsólinni fyrir klukkan 9. Maður vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið! Sem betur fer eru þeir með vökvunarkerfi á golfvöllunum annars væri þetta allt brunnið útí eitt.
Annars er farið að styttast í sumarfríið sem hefst 11.júlí og stefnan á útilegur meira og minna í rúman mánuð. Vonandi hækkar bensínið aðeins meira svo maður hafi afsökun fyrir að labba bara og hanga í tjaldi.

Gleðilegt sumar,
H

© 2011 Heimasíða Ölmu og Hákonar Suffusion theme by Sayontan Sinha