Kominn á fjallahjól

 Posted by Hákon at 10:09  Blogg  Comments Off
Jul 302008
 

í tilefni af heitasta degi ársins, fór ég í gær og fjárfesti í fjallahjóli. Gripurinn er tuttugu og eitthvað gíra léttmálmsfákur af gerðinni Mongoose. Hjólið var nátturulega tekið í sitt rétta umhverfi um leið og færi gafst. Barnastóllinn var spenntur á fjölskyldan tekin á rúntinn uppí Elliðaárdal þar sem kvöldmaturinn var snæddur. Rúnturinn reyndist vera um 14 kílómetrar enda mældur með hraðamælinum sem ég fékk fyrir 2 árum en hefur vantað hjólið undir.

Sé ykkur á rúntinum

Cremminn 2009

 Posted by cremasterinn at 15:12  Cremasterinn  Comments Off
Jul 232008
 

Þó svo ekki séu komin úrslit frá síðustu helgi á netið, né búið að ákveða dagssetningu á golfmót ársins, er komin dagssetning á Cremmann 2009: 1.maí. Þetta verður í boði Óla Beis í CT.

Tjaldið hélt

 Posted by Hákon at 22:19  Blogg  Comments Off
Jul 132008
 

Fórum í útilegu um helgina eftir 4 þurrar vikur í borginni. Ekki dropi úr lofti og allur gróður að brenna af þurrki. 16 mínútum eftir að ég er kominn í sumarfrí byrja fyrstu droparnir að detta úr lofti. Við náðum þó að komast á tjaldstæðið við bakka Þjórsár í þurru og tjalda þannig. Á laugardeginum rigndi massívt og allt á floti. Það stytti svo upp um kvöldmatarleytið og það hélst þurrt á meðan skemmtiatriðium stóð. Rigningin hélt svo áfram allan sunnudaginn. vá.

Tjaldið hélt rigningunni úti og á það heiður skilinn. Reyndar var ekki hvasst þannig að veðrið var svo sem ekki slæmt. Við bræðurnir náðum að fara í smá hjólatúr og náðum góðum fíling. Karen Erla kann vel við sig í sveitinni og í svefnpoka. Það vantaði bara einhverja krakka til að leika við.

© 2011 Heimasíða Ölmu og Hákonar Suffusion theme by Sayontan Sinha