Abbabbabb

 Posted by Hákon at 0:45  Blogg  Comments Off
Aug 212008
 

Eftir að hafa hlustað á Foo Fighters, AC/DC og Nick Cave á 92 decibilum alla vikuna í bílskúrnum var komið að nýjum takti. Við hjónin skelltum okkur á Mamma Mia í bíó í kvöld. Myndin var afar hressandi og gott stuð í bíóinu. Í hlé var auðvitað spiluð Foo Fighters plata og maður brosti útí annað. Ætli Abba sé ekki merkilegasta útflutningsvara Svía… strax á eftir Kosta boda.
Annars erum við búin að vera í sumarfríi núna í einhverja 18 daga og það er alltof stutt eftir. Búin að vera fyrir norðan og vestan og keyrðum 1999 kílómetra í aðaltúrnum (Kópavogur – Húsavík – Önundarfjörður – Kópavogur). Vinna á mánudaginn.

© 2011 Heimasíða Ölmu og Hákonar Suffusion theme by Sayontan Sinha