Helgarfrí

 Posted by Hákon at 21:17  Blogg  Comments Off
Feb 192009
 

Jæja, þá er maður loksins að komast heim í helgarfrí eftir að hafa verið í rúman mánuð í Sverje. Námskeiðið sem ég var að kenna kláraðist í dag og útskrifuðust allir nemarnir. Við fórum í fyrrakvöld og héldum uppá áfangan á írska barnum Fagan’s með glæsibrag. Þetta var alveg eins og allsstaðar í heiminum þar sem ungir námsmenn koma saman. Bjór og það allt. Það vildi svo heppilega til að einn af kennurunum átti afmæli þennan dag, breti sem varð 65 ára, og það var sungið fyrir hann 8 sinnum afmælissöngurinn í fullu blasti.
Í gærkvöldi var svo öllu dannaðara kvöld þegar nokkrir af kennarastofunni fóru út að borða til að kveðja einn kennaran sem var að fara til Stokkhólms að vinna. Við fórum á Lemongrass sem er flottur asískur staður. Það var líka helvíti fínt.

Það er varla hægt að segja að það sé partý öll kvöld hjá manni en þetta stytti manni allavega stundir við að telja niður klukkutímana í heimför.

Svo fór ég í dag og græjaði fyrir okkur leiguhúsnæði. Skrifa svo undir samninginn í næstu viku þegar ég kem út aftur :)

later,
Hákon
p.s. ég fór í 7 strætóa í dag :)

Gaman að mála

 Posted by Hákon at 20:53  Blogg  1 Response »
Feb 072009
 

Merkilegt þykir mér hvað við svíarnir eru fremstir í öllu sem við tökum okkur fyrir hendur, t.d. erum við langfremstir í heiminum í; gleðipoppi, danstónlist, þungarokki, jafnrétti, bílaframleiðslu, flugvélaframleiðslu, sælgætisframleiðslu (og -áti), handbolta, húsgagnasmíði og nú húsamálun.

Ég er semsagt kominn í aukavinnu hérna í Svíaveldi, tek að mála gegn fæði og húsnæði og fyrsta verkefnið var í dag.

2fold_rulla
Á rölti mínu útí málningarvöruverslun átti ég nú ekki von á neinum stórtíðindum en raunin varð nú heldur betur önnur. Þetta snilldartæki sem sést hér á myndinni rakst ég á útí versluninni og ég ætlaði ekki að trúa mínum eigin augum. En ég ákvað að prófa og niðurstaðan var eins og Svíum er líkt: þvílík snilld. Ég setti grunn í aðra rúllina og málningu í hina og málaði einfaldlega tvær umferðir í einu. Tímasparnaðurinn var gríðarlegur.

Nú er bara að verða sér úti um umboðið og gjörbreyta málningarbransanum á Íslandi.

© 2011 Heimasíða Ölmu og Hákonar Suffusion theme by Sayontan Sinha