Í dag er stóri dagurinn. Við fáum nýja húsið okkar afhent í hádeginu og gámurinn kemur klukkan 5.
Loksins!
Það er búið að vera fínt undanfarna viku, að hafa skvísurnar hérna úti og nú verður þetta enn betra. Við erum byrjuð að undirbúa þessa helstu hluti eins og að kaupa húsgögn og sjónvarp, þannig að óumflýjanlega ferðin í IKEA var farin um síðustu helgi. Gott að það er afstaðið.
Á sunnudaginn fórum við í Sirkus sem var fínt þó svo standardinn var ekki alveg í heimsklassa.
Slæmu fréttirnar eru að Eimskip er að klúðra þessum bílaflutningnum big time og leikskólamál fyrir Karen Erlu eru ekki jákvæð. Þannig að það er nóg af símtölum og veseni framundan.
