Gleðilegt sumar

 Posted by alma at 17:30  Blogg  Comments Off
Apr 242009
 

hæhæ öll

Nú er komið sumar:) Sumardagurinn fyrsti í gær og eintóm lukka:)  Gleðilegt sumar!
Á miðvikudaginn var ég send á fæðingardeildina til að snúa litla gutta en viti menn hann gaf mömmu sinni bestu gjöfina sem til er, já hann snéri sér nóttina fyrir þannig að jeiiiii

Á sumardaginn fyrsta fóru svo Karen Erla og Hákon með lest til Gautaborgar og náðu í bílinn:)  Hann flaug í gegnum skoðun svo núna er bara að bíða fram á mið/fim til að fá númeraplöturnar og þá er hægt að fara á rúntinn:) Hálf fyndið að hafa bílinn hér fyrir utan og geta ekki notað hann.

Annars gengur allt fínt hér, er í endalausum aukaskoðunum og allt hlustað bak og fyrir og allt kemur mjög vel út.  Fer svo í annan sónar e 2 vikur til að sjá hvort enn sé ekki allt í lagi…þeim fannst hann stækka hægt, en ég sagði að hann tæki þetta út á lokasprettinum;)  Okkur líður bara vel:)

Karen Erla er svo komin með barnapíu sem hún er himinlifandi með.  Það er Sandra Líf dóttir hennar Láru.  Hún var hér í allan dag að leika og lita og ég bara í slökun í sólinni með glanstímaritin og gúmmelaði;)  Aumingja Hákon var að vinna en hann er nú kominn heim og bara farinn út að skokka! dugnaður:) Continue reading »

Á lokastefnu

 Posted by Hákon at 7:32  Blogg  Comments Off
Apr 242009
 

Þá er litli kútur kominn á lokastefnu. Ljósmóðirin hérna var farin að hafa áhyggjur af því að sá litli ætlaði ekki að koma sér í réttar stellingar. Hún pantaði aukaskoðun og fór afmælisdagurinn hennar Ölmu í það að stressa sig aðeins fyrir þetta en auðvitað hafði sá litli þá snúið sér um nóttina og reddað þessu sjálfur bara.

Við Karen Erla fórum tvö saman í ferðalag í gær, við fórum til Gautaborgar að sækja bílinn okkar. Þetta var tæplega 10 tíma rúntur en bara gaman. Lestarferð, villtur leigubílstjóri og svo akandi númerslaus 300 kílómetra heim. Bara gaman. Númerin koma svo í pósti til okkar í næstu viku en þangað til getum við ekki notað bílinn….þannig ætli hann verði ekki bónaður um helgina.

 

Apr 142009
 

Verkefni kvöldsins er að slá grasið í garðinum… datt bara í hug að segja frá því þegar ég sá þetta: Þungfært á Mývatns- og Möðrudalsöræfum og Vopnafjarðarheiði  

Glad Påsk

 Posted by Hákon at 13:23  Blogg  Comments Off
Apr 122009
 

…eða gleðilega páska eins og sagt er. Hér er smá myndband af höllinni okkar hérna úti.
[flv]http://www.almaoghakon.com/video/myndband1/MVI_5152.flv[/flv]

Smá fréttaskot frá Malmö

 Posted by alma at 20:04  Blogg  Comments Off
Apr 012009
 

Hejsan hejsan
Þá erum við komin öll til Malmö.
Flugferðin í síðustu viku gekk eins og í sögu. Ég setti reyndar gjöfina frá Urði Völu, Agnesi Gígju og Sunnu Brieti á vitlausan stað þannig að kaupa varð smá pleymo og VÁ skvísa lék sér með það dót á meðan beðið var eftir vélinni og í vélinni og er enn að.  Hákon kom svo og náði í okkur útá flugvöll ánægður að vera loksins búinn að fá okkur til sín.
Næstu 2 dagar fóru reyndar í inniveru því Karen Erla var með svo mikið kvef að það vall úr augunum hennar en það er allt að klárast.  Við fórum samt á “skatteverket” til að skrá okkur í landið og fá kennitölu, og ha viti menn ég var enn í kerfinu eftir rúm 20 ár og fékk sömu kennitölu. Hihi
Í fyrradag fór ég svo að tala við konuna sem úthlutar leikskólaplássum og hún sagði að allt væri fullt og að Karen Erla kæmist inn á leikskóla 17.ágúst!!!! æææææ þannig að við mæðgur fórum niður í bæ og á kaffihús að hugsa málið.  Gærmorguninn fór svo í að hringja um allt á einkareknu skólana til að ath hvort einhver hefði pláss og einn gaf smá von og við förum þangað á föstudag að skoða:)  Annars er bara að koma á rútínu heima og leika við krakka um helgar eða eitthvað. Continue reading »

© 2011 Heimasíða Ölmu og Hákonar Suffusion theme by Sayontan Sinha