Lítill drengur gerði sér lítið fyrir og mætti í heiminn í gærkvöld. Þegar við vorum að fara að sofa klukkan hálfellefu komu fyrstu hríðirnar með tíu mínútna millibili. Hálftíma seinna var þetta orðið nokkuð örar og við ákváðum að koma okkur hægt og rólega á spítalann… þetta tæki hvort sem er 5 eða 10 klukkutíma. En svo var ekki, við skutluðum Karen Erlu steinsofandi til Láru og vorum mætt á spítalan rétt fyrir miðnætti. 24 mínútum seinna var guttinn kominn í heiminn eða klukkan 00.21 þann 26.maí 2009.
Okkur þykir hann allavega rosalega sætur og hann líkist systur sinni mjög mikið. Hann er með nokkuð meira hár en Karen Erla var með en það virðist vera ljósara en hennar, en þetta kemur allt í ljós.
Helstu tölur voru að hann var 51cm langur og 3.450 grömm. Aðeins hálfum sentimetra lengri en Karen Erla en annars jafn þungur. Hann var fljótur að taka brjóst og virðist ekki þurfa mikinn svefn, líkt og systir sín.
Mömmunni heilsast vel og er ekkert þreytt eftir þetta allt saman, miðað við síðast. Mæðginin fá að koma heim í hádeginu á morgun og þá ætlar Karen Erla að taka sér frí á leikskólanum og taka á móti þeim.
Hér eru nokkrar myndir