Rölt í dag

 Posted by Hákon at 15:14  Blogg  1 Response »
Jun 272009
 

Í gær héldum við uppá upphaf sumarfrísins með ísköldu hvítvíni og flottri máltíð. Gott að vera aðeins kominn heim aftur eftir stranga vinnudaga að undanförnu.

í dag fórum við svo til Lund og röltum um bæinn og fengum okkur löns og eitthvað. Þetta er nú frekar daufur bær á sumrin þar sem allt skólafólkið er í fríi. Allavega miklu minna af fólki en þegar við fórum þarna fyrir 2 mánuðum. En bærinn er samt flottur og nú kíktum við meirað sega í kirkjuna…

Karen Erlu var svo boðið á ströndina núna seinnipartinn og var ekki lengi að þiggja það.

Á morgun ætlum við svo að eyða deginum í Kaupmannahöfn og skutla svo Erlu útá flugvöll.

Síminn bilaður

 Posted by Hákon at 15:58  Blogg  Comments Off
Jun 152009
 

Svo enginn haldi að við höfum horfið af jörðinni þá eru tæknilegir örðugleikar í tölvukerfinu okkar. Ráterinn er bilaður svo ekkert símasamband er við okkur og tölvusamband lélegt. Viðgerð stendur yfir ;)

Ís í dag

 Posted by Hákon at 8:44  Blogg  4 Responses »
Jun 142009
 

Stelpurnar fengu ís í dag. Við fórum í smá bíltúr í dag um nágrennið. Enduðum á götutívolí í Vellinge sem er lítill svefnbær rétt suður af Malmö. Veðrið var fallegt en þónokkuð rok.

ís í dag

ís í dag

Í morgun

 Posted by Hákon at 10:33  Blogg  3 Responses »
Jun 032009
 

Litli bróðir kom uppí rúm hjá stóru systur:

dsc00054

© 2011 Heimasíða Ölmu og Hákonar Suffusion theme by Sayontan Sinha