Í gær fórum við á ströndina í Falsterbo. Ströndin er æðisleg! Hvítur sandur og hægt að vaða lengst útí sjó. Við pökkuðum nesti fyrir allan daginn og nutum dagsins, þá sérstaklega Karen Erla sem var í “himnaríki”. Litli snúðurinn vildi nú ekkert mikið sofa þarna svo hann var bara í tjaldinu að hlusta á öldurnar. Þegar komið var heim var svo byrjað að smyrja á sig aloa-vera geli því það reyndust vera einhverjir helgidagar hér og þar. Höfðum það svo rosa kósí í gærkveldi og poppuðum og horfðum saman á bíó. Hinn fullkomni dagur í lífi Karenar Erlu:)
Svo er nú kominn nýr dagur og ég, litli snúður og Karen Erla komin á ról..reynar litli snúður sofnaður aftur;) Talandi um litla snúð þá náði hann þeim áfanga í morgunleikfiminni í dag að velta sér af maganum yfir á bakið!
Ekki bara einu sinni hledur oftar, enda er hann sofnaður núna eftir átökin. Hann dafnar mjög vel, rosalega duglegur að halda haus, og næst stundum í þvílíkt spjall sem er svo gaman:) Hans tími er ca 6-8 og þá er mest spjallað og hlegið.
Hafið það ggott í dag!