Nú er maður orðinn sekur um að hafa ekki bloggað í margar vikur. Afsakanirnar eru margar og óþarfi að telja þær hér upp því þær eru bara þessar venjulegu. Reyndar er ein ný afsökun en það er smá framhjáhald við bloggið með Feisbúkk.
Annars er allt gott að frétta héðan. Gestakomum sumarsins lauk þegar mamma og pabbi fóru heim á föstudaginn og þá byrjar kannski reglulega lífið aftur. Vonandi náum við nokkrum góðum sumarvikum í viðbót svo maður geti grillað eitthvað meira.
Karen Erla fékk smá pest um daginn og við skoðun kom í ljós eyrnabólga á byrjunarstigi, hún var því heima vikuna sem átti að vera fyrsta vikan á leikskólanum eftir sumarfrí. Kári fékk líka smá kvef en hann er sterkur svo það stoppar líklega stutt.
Við fórum á Malmöfestival í gær og vorum frá 12 til 21 í bænum!! Þvílíkt mikið að skoða, prófa og smakka. Þetta er svona Menningarnótt í þriðja veldi sem stendur yfir í 8 daga. Frábært.

