Dec 272009
Drengurinn okkar var skírður í dag og hlaut hann nafnið Hallgrímur Kári… sem hann var reyndar búinn að fá fyrir löngu. Haldin var príðisfín veisla hjá ömmunni á Norðurbakkanum og var boðið uppá nokkrar tertur. Sólin skein glatt og nokkuð létt var yfir mönnum. Karen Erla söng einsöng í athöfninni Luciu lagið sænska af mikilli snilld.
Góður dagur.


Sorry, the comment form is closed at this time.