Jun 052010
 

Hallgrímur Kári röltir í skólann með nýju skólatöskuna

Hallgrímur Kári byrjaði í leikskóla í vikunni. Hann var nú farinn að þekkja allt starfsfólkið og krakkana því hann hefur komið með Karen Erlu þangað á hverjum degi. En honum var tekið mjög vel og krakkarnir keppast við að knúsa hann og dekra við hann. Þó svo hann segi ekki eitt orð þá eru fóstrurnar ánægðar með að hann skuli skilja sænsku!!

Við erum annars búin að koma okkur ágætlega fyrir í nýju íbúðinni. Í tilefni að því héldum við innflutningspartý í gærkvöldi og það lukkaðist rosavel. Loksins komið sumar og hægt að grilla við kjöraðstæður og vera úti á stutterma fram undir miðnætti.

© 2011 Heimasíða Ölmu og Hákonar Suffusion theme by Sayontan Sinha