Sumarfríið á blússandi siglingu

 Posted by Hákon at 20:57  Blogg  Comments Off
Jul 212010
 

Krakkarnir í lauginni

Jæja, þá eru einhverjir 10 daga búnir af sumarfríinu og þetta er allt búið að vera ferlega fínt. Veðrið hefur leikið við okkur svo um munar.

Fríið byrjaði á því að við kvöddum Erlu sem hafði verið hjá okkur í mánuð. Við höfum svo aðeins verslað og dundað okkur við hitt og þetta. Farið á ströndina og þetta venjulega. Við fórum einn dag til Köben og versluðum og snökkuðum dönsku. VIð höfum haldið tvö matarboð og nokkur fleiri á dagskránni

Á mánudaginn fórum við svo í fyrstu útileguna okkar hérna í Svíþjóð. Við fórum á tanga sem heitir Mölle og það var alveg stórfínt. Við fórum í tvær fjallgöngur, hellaskoðun, strandpikknikk og ýmislegt fleira. Við skoðuðum nokkra gullfallega smábæi sem hefðu getað sómað sig vel á frönsku rivíerunni. Tjaldstæðið sem við vorum á var kannski svipað og að vera í Húsafelli en barnalaugin var algjör draumur fyrir krakkana.  Veðrið var kannski mesti munurinn því það var 28-30 gráður á daginn og kannski 20 gráður á nóttinni.

Á heimleiðinni í dag komum við í Pönnukökuhlöðunni, en það er gömul hlaða sem búið er að breyta í ferðamannaparadís. Þar eru hlaðborð með pönnukökum; amerískum, þunnum og djúpsteiktum, með sýrópi, ís, rjóma, sultu, sósu, kremi, beikoni og sælgæti. Þarna voru nokkrar hitaeiningar sem maður tók að sér og það var erfitt að ganga útí bíl aftur í þessum steikjandi hita.

Þegar við komum heim var Karen Erla fljót að drífa sig út í garð til að hitta nýju vinkonur sínar héðan úr hverfinu. Hún skilur ekkert í því að hún megi ekki bara gista hjá þeim!

Við eigum von á nokkrum góðum gestum næstu vikurnar þannig okkur mun ekki leiðast

Sumarfrí

 Posted by Hákon at 15:40  Blogg  Comments Off
Jul 092010
 

Nú eru allir komnir í sumarfrí. 4 vikur af afslöppun framundan :)

Sumarið heldur betur komið

 Posted by Hákon at 16:11  Blogg  Comments Off
Jul 042010
 

Ég og krakkarnir

Já sumarið er skollið á hér í Malmö. Hitinn er búinn að vera yfir 20 stigum nú í einhverja 10 daga í röð og allt í góðu. Mannlífið hérna í bænum er fullt af fjöri og mikið af fólki hér í kring á leið til eða frá ströndinni.

Hallgrímur Kári hefur sýnt nokkuð öfluga meðfædda hæfileika í fótbolta og golfi. Hann rekur boltann eins og hann sé límdur við tærnar útum allan garðinn hérna úti. Þegar hann er í golfi er magnað hvað sveiflan er öflug og árangursrík, sérstaklega þar sem hann hefur aldrei séð neinn í golfi áður…. þetta er bara í blóðinu.

Við eigum viku eftir af vinnu og svo byrjar fjögurra vikna sumarfrí og ekki laust við að maður sé farinn að hlakka til. Ekki erum við búin að ákveða neitt með ferðalög en aldrei að vita nema maður kíki eitthvað. Það var gott forskot sem við tókum á fríið með því að fara í 4 daga ferðalag í sumaróðalið hans Gæja í Smálöndunum.

Kryddjurtirnar og jarðaberin í garðinum spretta vel og lítur út fyrir góða uppskeru.

© 2011 Heimasíða Ölmu og Hákonar Suffusion theme by Sayontan Sinha