Já sumarið er skollið á hér í Malmö. Hitinn er búinn að vera yfir 20 stigum nú í einhverja 10 daga í röð og allt í góðu. Mannlífið hérna í bænum er fullt af fjöri og mikið af fólki hér í kring á leið til eða frá ströndinni.
Hallgrímur Kári hefur sýnt nokkuð öfluga meðfædda hæfileika í fótbolta og golfi. Hann rekur boltann eins og hann sé límdur við tærnar útum allan garðinn hérna úti. Þegar hann er í golfi er magnað hvað sveiflan er öflug og árangursrík, sérstaklega þar sem hann hefur aldrei séð neinn í golfi áður…. þetta er bara í blóðinu.
Við eigum viku eftir af vinnu og svo byrjar fjögurra vikna sumarfrí og ekki laust við að maður sé farinn að hlakka til. Ekki erum við búin að ákveða neitt með ferðalög en aldrei að vita nema maður kíki eitthvað. Það var gott forskot sem við tókum á fríið með því að fara í 4 daga ferðalag í sumaróðalið hans Gæja í Smálöndunum.
Kryddjurtirnar og jarðaberin í garðinum spretta vel og lítur út fyrir góða uppskeru.


Sorry, the comment form is closed at this time.