Gleðileg Jól

 Posted by Hákon at 11:07  Blogg
Dec 252011
 

Gleðileg jól kæru vinir á Klakanum, í Sandkassanum, hér í Svíden og annarsstaðar. Merry Christmas dear friends near and far. God Jul kära nordiske vänner.

Árið er búið að vera viðburðarríkt eins og vanalega. Krakkarnir hafa stækkað um nánast helming og margt um að vera í þeirra lífi. Karen Erla er orðin elst á leikskólanum og hlakkar hún mikið til að byrja í 6 ára bekk. Finnst ekkert spennandi að vera með öllum þessum smákrökkum. Hún hefur æft dans og tennis í haust og ætlar að prófa listhlaup á skautum eftir áramótin í staðinn fyrir dansinn. Hún á nokkrar góðar vinkonur hér í nágrenninu og ekki var amalegt að ein íslensk stúlka flutti í hverfið í haust, þær hafa verið góðar vinkonur frá fyrstu mínútu eftir að þær hittust.

Kári er orðinn duglegri að tala og er farinn að telja uppá 12! Bíladellan er algjör og var hann virkilega sáttur við að fá alla þessa bíla í jólagjöf í gær. Annars er  hann afar hress og glaður gutti. Hann hefur nú æft fimleika í eitt ár og fer á kostum í hverjum tíma, þvílík orka og dugnaður.

Sumarfríið okkar var coverað hér á blogginu í sumar og þar voru 11 lönd lögð að baki. Alma ákvað að hella sér útí skóbransann og opna skóbúð hér í Malmö næsta vor. Við fórum því í reisu í lok nóvember til New York til að kaupa skó. Ferðin gekk mjög vel þar sem nokkur hundruð skópör lágu í valnum. Þetta endaði því með að vera mikið ferðalaga-ár. 11 landa túrinn plús þrisvar til Íslands, einu sinni til USA og svo skaust Hákon bæði til Kosovo og Ungverjalands í vinnuferðir nú í desember. Þetta var þá líklega met ár hjá Hákoni, 16 lönd á einu ári.

Sorry, the comment form is closed at this time.

   
© 2011 Heimasíða Ölmu og Hákonar Suffusion theme by Sayontan Sinha