Síðasta vikan

 Posted by at 9:23  Blogg  Comments Off
Feb 192012
 

Nú er ég í flugi á leið til Búdapest. Já, það er internet um borð :) Frábært hjá Norwegian að hafa frítt net um borð. Nýja uppáhalds flugfélagið mitt.

Allavega. Þá ferð síðasta vikan mín af þessum fjórum að hefjast. Þetta er búið að vera skemmtilegt verkefni og vonandi verða síðustu 5 dagarnir það líka.
Það leiðinlegasta hingað til var rúmlega 4 tíma seinkun á fluginu mínu á föstudaginn sem eyðilagði nánast allan daginn fyrir mér. Það snjóaði svo hressilega í Búdapest að vellinum var hreinlega lokað þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir mínar að fá ungverska kollega mína til að gefa minni vél séns á að lenda :)

Eitthvað verður maður að undirbúa skóbúðina á kvöldin en svo tekur maður törn með Þorra málara á föstudaginn og klárar þessa búð á einni helgi. Ekkert hangs.

Að lokum nokkrir punktar um Ungverjaland:

  • Ungverjar borða gjarnan rjómatertur og brauðtertur í morgunmat
  • Allan annan mat djúpsteikja þeir
  • Ungverjar spila keilu með minni kúlu en venjulegt fólk, hún passar í lófann og er ekki með neinar holur fyrir puttana. Brautin er líka helmingi styttri.
  • Ungverjum finnst bara fínt að vera berir að ofan í ræktinni (aðallega karlmenn)
  • Ungverjar döbba allar bíómyndir og sjónvarpsefni með sínu “fallega” máli
  • Beckham kamburinn sem var í tísku á Íslandi fyrir sirka 7 árum er sjóðheitur hér, snjóþvegnar gallabuxur líka
  • Í einni verslunarmiðstöðinni hérna er svaka langur gangur á 3.hæð. Á ganginum eru fullt af leðursófum. Fólk kemur mikið og kelar í þessum sófum, um hábjartan dag.
  • Ungverjar heilsast með handabandi á hverjum einasta degi. Ég tek í hendina á sirka 20 köllum á hverjum einasta degi, tilvalið fyrir kvefpestir að dreifa sér. Konurnar fá bara handaband ef þær rétta fram höndina, maðurinn má ekki krefja konuna um handaband.

seeya,
Hákon

Mættur út aftur

 Posted by at 23:47  Blogg  Comments Off
Feb 122012
 

Vaknaði fyrir klukkan 6 í morgun og átti flug klukkan 0820 sem er ekki neitt sérstaklega skemmtilegur tími svona á sunnudegi. Dagurinn í dag hér í Búdapest hefur mest farið í að leggja sig, taka á því ræktinni og pirra sig útí hæga nettengingu.
Ég ætla að fara í Vodafone á morgun og reyna að fá þá til að tjúna til 3G punginn minn!

Helgin var annars fín, krakkarnir og frúin að ná sér eftir 2ja vikna veikindi (allt á meðan ég var úti!). Þorri mætti á fimmtudaginn og er strax byrjaður að smíða á fullu í búðinni.

Helgarfrí eftir fyrstu tvær vikurnar

 Posted by at 23:17  Blogg  Comments Off
Feb 092012
 

Loksins fær maður að hitta krakkana og konuna aftur! Fer í flug í hádeginu og fæ að vera fim/fös/lau heima þessa helgina. Ætli maður taki ekki eitthvað fram hamarinn og byrji að smíða í skóbúðinni með Þorra Málara?

Hitabylgja

 Posted by at 17:17  Blogg  Comments Off
Feb 072012
 

Manni líður eins og í hitabylgju hérna í Búdapest núna. Það er bara 4 stiga frost en vanalega er hérna 10 til 15 stiga frost.
Ég er eiginlega ennþá að jafna mig eftir að hafa beðið eftir lestinni í 20 mínútur í gær í 15 stiga frosti. Það versta við lognið er að það er hvergi hægt að fara í skjól!

Sund og Supercross

 Posted by at 11:59  Blogg  Comments Off
Feb 052012
 

Loftið í anddyrinu á sundlauginni

Búdapest á það sameiginlegt með Reykjavík að hér finnst heitt vatn í jörðu. Heimamenn hafa því komið sér upp nokkrum sundlaugum. Ég skellti mér í eina þeirra í gær og þótti það nokkuð magnað. Þetta var líklega 100 ára gömul bygging sem minnti meira á dómkirkju en sundlaug. Ég sá einhverja 20 potta og laugar þarna inni, allt frá litlum 20°c kælipottum uppí stóra 50 manna heita potta, svo voru kannski 10 gufuböð og saunur líka. Úti var svo frábær útilaug í fullkomnum 39°c hita, djúp og með nuddstútum. Ég ákvað að skella mér í 50metra laugina og taka nokkur hundruð metra en ég fékk ekki að fara ofaní án sundhettu, það var jú 10 stiga frost og snjókoma.

Um kvöldið fór ég svo á Super-moto-cross keppni sem haldin var í sýningarhöll við hliðina á þjóðarleikvanginum. Þetta var nú meira supermoto-endurocross en hvað um það. Brautin var flott, gólfið lagt með spónarplötum og nokkrar þrautir og stórt stökk. Þetta var nokkuð vel sett upp hjá þeim, keppt var í crosshjólaflokki og supermotoflokki. Crosshjólin voru á einhverskonar götudekkjum eða endurodekkjum. Supermotohjólin fóru aðeins aðra leið en þau slepptu litlu stökkunum og trjádrumbunum.

Flott skemmtun, hressandi trial-sýning og fjórhjólasýning í hléum og þulurinn var örugglega fyndinn en ég skildi ekki eitt einasta orð. Standardinn á hjólurunum var ekki neitt frábær, ég hefði allavega ekki orðið síðastur ;)

 

Gömul frænka deyr

 Posted by at 21:33  Blogg  Comments Off
Feb 032012
 
Malev

Malev í Köben

Stemmningin hér í flugstjórnar-miðstöðinni í Búdapest í dag var eins þegar að gömul frænka deyr. Ríkisflugfélagið Malev fór á hausinn en það er búið að vera partur af þjóðinni í 66 ár. Heimamenn hafa einmitt verið að spyrja mig hvernig þetta hafi verið á Klakanum hérna um árið, þegar allir fóru á einni nóttu úr Range Roverunum og yfir á sósjalinn. Þeir hafa heyrt sögurnar og bíða eftir að hinir dómínókubbarnir falli á hliðina eins og gerst hefur á Íslandi og víðar. (sjá færslu frá í gær)

Greyið fólkið var að hafa áhyggjur af mér að komast ekki heim í helgarfrí. Ég spurði bara á móti hvort það þekkti ekki minnst 2 sem vinna hjá Malev, hafðu frekar áhyggjur af þeim.

Einn af kennurunum í kúrsnum okkar átti að kenna klukkan 10 í morgun hjá okkur. Hann er þriðja kynslóð af flugmönnum hjá Malev og er einn af chief-pilotunum hjá þeim. Gráhærður kall í kringum 55 ára aldurinn og reffilegur og teinréttur eins og sumir flugmenn eiga til með að vera. Afi hans var einn af upphaflegu flugmönnunum í hópnum á fimmta áratugnum. Hann mætti í morgun, búinn að tæma skápinn sinn eftir að fyrirskipun kom klukkan 0600 um að það þyrfti að vera búið klukkan 1000. Ekki var nú hátt á honum risið.

Klukkan 12:00 flaug svo flotinn hinsta sinn. Allar vélarnar fóru til USA þar sem bankinn tók þær í sína vörslu. Fólk grét kannski ekki en var voteygt.