alma

Allt að gerast

 Posted by at 6:59  Blogg  Comments Off
Jul 152009
 

Í gær fórum við á ströndina í Falsterbo.  Ströndin er æðisleg!  Hvítur sandur og hægt að vaða lengst útí sjó. Við pökkuðum nesti fyrir allan daginn og nutum dagsins, þá sérstaklega Karen Erla sem var í “himnaríki”.  Litli snúðurinn vildi nú ekkert mikið sofa þarna svo hann var bara í tjaldinu að hlusta á öldurnar.  Þegar komið var heim var svo byrjað að smyrja á sig aloa-vera geli því það reyndust vera einhverjir helgidagar hér og þar.  Höfðum það svo rosa kósí í gærkveldi og poppuðum og horfðum saman á bíó.   Hinn fullkomni dagur í lífi Karenar Erlu:)

Svo er nú kominn nýr dagur og ég, litli snúður og Karen Erla komin á ról..reynar litli snúður sofnaður aftur;)   Talandi um litla snúð þá náði hann þeim áfanga í morgunleikfiminni í dag að velta sér af maganum yfir á bakið! :)  Ekki bara einu sinni hledur oftar, enda er hann sofnaður núna eftir átökin.  Hann dafnar mjög vel, rosalega duglegur að halda haus, og næst stundum í þvílíkt spjall sem er svo gaman:)  Hans tími er ca 6-8 og þá er mest spjallað og hlegið.

Hafið það ggott í dag!

Bumbulíus heldur áfram að stækka:)

 Posted by at 18:11  Blogg  Comments Off
May 192009
 

Halló,

Jæja var í skoðun í dag, komin 39 vikur ss ekki mikið eftir.  Allt lítur mjög vel út og bumban og þá vonandi bumbulíus stækka og stækka:)  Held nú reyndar að þessi gutti komi ekki á settum degi, ég spái að hann komi 1.júní en ég hef reyndar ekki verið fræg fyrir góða spámennsku;)

Rigningin frá Íslandi loksins farin héðan og jaaa maður lærir seint…..við mæðgur erum eins og tveir tómatar–  hihi já vörn númer 25 er ekki alveg nóg!

Jæja best að fara lesa fyrir litlu prinsessuna, er frekar þreytt eftir daginn. Leikskóli og svo kom Sandra að leika við hana og svo á hún ennþá meira spennandi dag framundan á morgun…..Sandra ætlar að ná í hana á leikskólann og vera með henni eitthvað fram á dag:)

Heyri í ykkur síðar,

alma og fam

Dagur 3 á leikskólanum

 Posted by at 13:59  Blogg  Comments Off
May 062009
 

Jæja þá er dagur 3 liðinn á leikskólanum og allt gengur eins og í sögu.  Ég var með henni fyrsta hálftímann eða í samverustundinni sem er sungið, dansað og lesið upp hverjir eru mættir osfrv svo fór mamman heim og lagði sig:) (smá dekur).  Kom svo eftir matinn eða um hálf eitt til að ná í hana en hún var nú ekki á því að fara heim. Vildi vera miklu lengur og leika:)  Dagurinn gekk ss mjög vel, hún fékk að mála bóndabæ, já þau eru að búa til sviðið fyrir leiksýninguna sem er í júní og í dag var verið að smíða og mála sviðið:)  Næstu daga fara svo fram æfingar á leiksýningunni:)  algjört ævintýri       Continue reading »

Gleðilegt sumar

 Posted by at 17:30  Blogg  Comments Off
Apr 242009
 

hæhæ öll

Nú er komið sumar:) Sumardagurinn fyrsti í gær og eintóm lukka:)  Gleðilegt sumar!
Á miðvikudaginn var ég send á fæðingardeildina til að snúa litla gutta en viti menn hann gaf mömmu sinni bestu gjöfina sem til er, já hann snéri sér nóttina fyrir þannig að jeiiiii

Á sumardaginn fyrsta fóru svo Karen Erla og Hákon með lest til Gautaborgar og náðu í bílinn:)  Hann flaug í gegnum skoðun svo núna er bara að bíða fram á mið/fim til að fá númeraplöturnar og þá er hægt að fara á rúntinn:) Hálf fyndið að hafa bílinn hér fyrir utan og geta ekki notað hann.

Annars gengur allt fínt hér, er í endalausum aukaskoðunum og allt hlustað bak og fyrir og allt kemur mjög vel út.  Fer svo í annan sónar e 2 vikur til að sjá hvort enn sé ekki allt í lagi…þeim fannst hann stækka hægt, en ég sagði að hann tæki þetta út á lokasprettinum;)  Okkur líður bara vel:)

Karen Erla er svo komin með barnapíu sem hún er himinlifandi með.  Það er Sandra Líf dóttir hennar Láru.  Hún var hér í allan dag að leika og lita og ég bara í slökun í sólinni með glanstímaritin og gúmmelaði;)  Aumingja Hákon var að vinna en hann er nú kominn heim og bara farinn út að skokka! dugnaður:) Continue reading »

Smá fréttaskot frá Malmö

 Posted by at 20:04  Blogg  Comments Off
Apr 012009
 

Hejsan hejsan
Þá erum við komin öll til Malmö.
Flugferðin í síðustu viku gekk eins og í sögu. Ég setti reyndar gjöfina frá Urði Völu, Agnesi Gígju og Sunnu Brieti á vitlausan stað þannig að kaupa varð smá pleymo og VÁ skvísa lék sér með það dót á meðan beðið var eftir vélinni og í vélinni og er enn að.  Hákon kom svo og náði í okkur útá flugvöll ánægður að vera loksins búinn að fá okkur til sín.
Næstu 2 dagar fóru reyndar í inniveru því Karen Erla var með svo mikið kvef að það vall úr augunum hennar en það er allt að klárast.  Við fórum samt á “skatteverket” til að skrá okkur í landið og fá kennitölu, og ha viti menn ég var enn í kerfinu eftir rúm 20 ár og fékk sömu kennitölu. Hihi
Í fyrradag fór ég svo að tala við konuna sem úthlutar leikskólaplássum og hún sagði að allt væri fullt og að Karen Erla kæmist inn á leikskóla 17.ágúst!!!! æææææ þannig að við mæðgur fórum niður í bæ og á kaffihús að hugsa málið.  Gærmorguninn fór svo í að hringja um allt á einkareknu skólana til að ath hvort einhver hefði pláss og einn gaf smá von og við förum þangað á föstudag að skoða:)  Annars er bara að koma á rútínu heima og leika við krakka um helgar eða eitthvað. Continue reading »