Búdapest á það sameiginlegt með Reykjavík að hér finnst heitt vatn í jörðu. Heimamenn hafa því komið sér upp nokkrum sundlaugum. Ég skellti mér í eina þeirra í gær og þótti það nokkuð magnað. Þetta var líklega 100 ára gömul bygging sem minnti meira á dómkirkju en sundlaug. Ég sá einhverja 20 potta og laugar þarna inni, allt frá litlum 20°c kælipottum uppí stóra 50 manna heita potta, svo voru kannski 10 gufuböð og saunur líka. Úti var svo frábær útilaug í fullkomnum 39°c hita, djúp og með nuddstútum. Ég ákvað að skella mér í 50metra laugina og taka nokkur hundruð metra en ég fékk ekki að fara ofaní án sundhettu, það var jú 10 stiga frost og snjókoma.
Um kvöldið fór ég svo á Super-moto-cross keppni sem haldin var í sýningarhöll við hliðina á þjóðarleikvanginum. Þetta var nú meira supermoto-endurocross en hvað um það. Brautin var flott, gólfið lagt með spónarplötum og nokkrar þrautir og stórt stökk. Þetta var nokkuð vel sett upp hjá þeim, keppt var í crosshjólaflokki og supermotoflokki. Crosshjólin voru á einhverskonar götudekkjum eða endurodekkjum. Supermotohjólin fóru aðeins aðra leið en þau slepptu litlu stökkunum og trjádrumbunum.
Flott skemmtun, hressandi trial-sýning og fjórhjólasýning í hléum og þulurinn var örugglega fyndinn en ég skildi ekki eitt einasta orð. Standardinn á hjólurunum var ekki neitt frábær, ég hefði allavega ekki orðið síðastur





