Loksins er dollan komin heim eftir 7 ára bið. Það fer vel um hana á arinhillunni.
Annars var keppnin æsispennandi svo ekki sé meira sagt. Það voru sunnan 18 metrar á sek og gekk á með hagléli og rigningu í bland. Undirritaður mætti ákveðinn til leiks og tók um 320m dræv á fyrstu á meðan hinir drengirnir rétt fóru 220. Þarna fór skjálfti um aðra leikmenn þar sem þeir sáu að við ofurefli var að etja. Eftir 7 holur var Addi með 1 höggs forystu á undirritaðan en á 8.teig tók hann létta “Hvammsvík” á þetta og færði sigurinn á silfurfati. Meistarinn sló ekki feilpúst (nema að hafa 3 púttað allar flatir nema eina sem var fjórpútt).
Drengirnir fóru svo í 3 manna bráðabana um annað sætið (4 höggum á eftir) þar sem þeim fannst svo gaman að vera úti í góða veðrinu. Þar sýndi Addi klærnar og reyndar líka í pókernum um kvöldið.
Tvö eftirminnileg veðurhögg voru 165m högg með 8 járni í meðvindi og 140m högg með 5 tré í mótvindi.
Góðar stundir,
El Maestro