Póker reglur
Hvaða hönd vinnur í póker?
Það eru til tíu tilbrigði af póker “höndum” – Royal Flush er best en High Card er verst. Hér kemur röðin.
1. Konungleg röð – Royal Flush
Hin ósigrandi pókerhönd. A -K -Q -J -10 í sömu sort.
2. Hrein röð – Straight Flush
Næst sterkasta höndin. Röð í sömu sort en ekki Konungleg röð. T.d. 8♣-7♣-6♣-5♣-4♣ í sömu sort. Því hærra sem hæsta spilið er, því sterkari er höndin. 9♣-8♣-7♣-6♣-5♣ vinnur því 8♣-7♣-6♣-5♣-4♣ .
3. Ferna – Four of a kind
Fjögur spil eins. A-A-A-A-K er sterkasta höndin í þessum flokki en 2-2-2-2-3 sú veikasta. Séu tveir spilarar með sömu fjögur spilin eins (þ.e. borðið) þá ræður hæsta fimmta spilið til um hvor hefur sterkari höndina. 8-8-8-8-K er því sterkari hönd en 8-8-8-8-10.
4. Fullt hús – Full house
A-A-A-K-K er sterkasta fulla húsið en 2-2-2-3-3 það veikasta. Hafi fleiri en einn spilari fullt hús er sú hönd sterkust sem hefur þrjú spilin hærri. 10-10-10-2-2 er því sterkari hönd en 9-9-9-8-8.
5. Litur – Flush
5 spil í sömu sort. J♣-9♣ -6♣ -5♣ -2♣ . Hér gildir hæsta spil ef fleiri spilarar hafa Flush. Hafi þeir sama hæsta spil gildir það næst hæsta og svo koll af kolli.
6. Röð – Straight
5 spil í röð, óháð hvaða tegund þau tilheyra. T.d. J♣ 10♥ 9♦ 8♦ 7♥ . Hærri röð vinnur ávallt minni röð. J♣ 10♣ 9♦ 8♥ 7♣ vinnur 8♦ -7♣ -6♣ -5♦ -4♥ .
7. Þrenna – Three of a kind
Þrír ásar eru sterkastir en þrír tvistar veikastir. Eins og áður gildir hæsta meðspilið ef fleiri spilarar hafa sömu þrjú pör. A-A-A-D-2 vinnur A-A-A-J-10
8. Tvö pör – Two pairs
Tvö pör. A-A-K-K-Q sterkasta höndin í þessum flokki en 3-3-2-2-4 sú veikasta. Eins og áður gildir fimmta spilð ef fleiri spilarar hafa sömu tvö pör. Q-Q-J-J-9 vinnur Q-Q-J-J-7. Einnig er það hæsta parið sem gildir ef menn hafa ólík tvö pör. J-J-2-2- 3 vinnur 10-10-9-9-A
9. Par – Pair
Eitt par. Ásapar er sterkasta parið en tvistapar það veikasta. Hæsta meðspilið telur ef fleiri spilarar hafa sama parið, næst sterkasta meðspilið telur ef báðir hafa jafnhátt meðspil og þriðja meðspilið telur ef hin tvö eru þau sömu. 6-6-4-3-2 vinnur 5-5-A-K-Q og J-J-A-9-3 vinnur J-J-A-8-7.
10. Hæsta spil – High Card
Ef enginn spilari hefur neitt af því sem á undan er talið er það hæsta spilið sem telur.
