Nokkur hundruð skór í New York

 Posted by Hákon at 20:34  Blogg  Comments Off
Dec 052011
 

Alma aðeins byrjuð að versla. Fyrir utan Macy's með Empire State i baksýn.

New York ferðin var aldeilis fín. Við byrjuðum fyrsta daginn á að versla aðeins í Macy’s sem kom vel út. Við hittum Hemma og Hugrúnu ásamt vinahjónum þeirra í bröns á flottum stað í Tribeca hverfinu sem heitir Bubby’s. Það var þrælfínt og sumir fengu sér Bloody-Mary í fordrykk, sem var borin fram í gömlum sultukrukkum, frekar hipp og kúl.

Svo byrjaði vinnan. Við fórum á nokkra fundi hjá heimsfrægum skóframleiðendum og kynntum okkur vortískuna. Við fengum mjög góðar móttökur og þetta var virkilega gaman. Á miðvikudeginum byrjaði svo skósýningin á Hilton hótelinu sem er hluti af þessari skóviku í borginni. Þarna voru einhverjir 600 framleiðendur af ýmsum stærðum og gerðum. Nokkrir mjög athyglisverðir en margir sem hentuðu okkur ekki. Þegar vikunni lauk vorum við komin með samninga við Brand of the year (Skómerki ársins) og Launch of the year (Flottasta nýja línan) sem samtök skóframleiðenda völdu einmitt í vikunni :)

Eitthvað náðum við nú að kíkja í búðir á kvöldin og borða á ágætis veitingastöðum, frægastur þeirra TAO sem vel er hægt að mæla með.

Flugið heim var á laugardagskvöldi og ætluðum við að kaupa einhverjar jólagjafir á laugardeginum. Greinilega voru “nokkrir” með það sama í huga þannig að dagurinn endaði snemma og við ákváðum að kaupa restina af gjöfunum á netinu. Það var varla hægt að komast hænufet áfram í borginni vegna mannmergðarinnar.

Alma keypti sem sagt nokkur hundruð skópör (eins og vanalega hehe) og nú fer sem sagt allt að verða klárt fyrir opnun á skóbúðinni La Lujo í Malmö næsta vor.

© 2011 Heimasíða Ölmu og Hákonar Suffusion theme by Sayontan Sinha