Texas Hold’em reglur
Stokkað, gefið og skyldusögn
Gjafarinn stokkar venjulegar 52 spila spilastokk. Gjafarinn er með Tölu fyrir framan sig sem stendur á að hann sé gjafarinn (dealer). Menn skiptast á að gefa og gengur það réttsælis yfir borðið.
Texas Hold-em Poker hefst á því að tveir spilarar vinstra megin við gjafarann setja í pottinn fyrirframákveðna upphæð áður gefið er til að vera viss um að spilað sé um eitthvað. Þarna er talað um að “vera blindur”. Sá sem er fyrstur frá gjafaranum leggur fram helminginn af lámarksveðmáli (litli blindur). Sá sem kemur næstur setur allt lágmarksveðmálið í pottinn (stóri blindur). Þegar gjafarinn er að spila með er hann stundum hafður sem litli blindur.
Hver spilari fær tvö spil frá gjafaranum og sýna þeir engum öðrum spilin.
Algengt er að lámarkssögn séu 2 spilapeningar. Litli blindur setur því 1 pening í upphafi og stóri blindur 2 peninga. Þegar röðin kemur aftur að litla blinda þá setur hann annan pening á borðið til að staðfesta að hann ætli að vera með.
Til að spilið taki ekki of langan tíma er lámarkssögnin hækkuð við fyrirfram ákveðið tækifæri, t.d. þegar 2 spilarar eru búnir með peningana eða þegar 30 mínútur eru liðnar af spilinu. Þá hækkar sögnin í 4 peningar og svo aftur í 6 peningar þegar 60 mínútur eru liðnar.
Veðmálin byrja
Einn hringur af veðmálum fer af stað og byrjar á spilaranum sem er á vinstri hönd seinni “blinda” spilarans. Spilarar geta séð, hækkað eða pakkað þegar röðin kemur að þeim. Blindi spilarinn sem setti hálfa lágmarksgjöf þarf að jafna við hina til að vera með.
Spilin í borði
Þegar fyrstu veðmálum er lokið, hendir gjafarinn efsta spilinu úr stokknum til hliðar. Þetta er kallað að brenna spilinu og er gert til að vera viss ef einhver hafði óvart séð efsta spilið úr bunkanum og til að forðast svindl.
Gjafarinn setur núna 3 spil á borðið svo allir geta séð þau.
Nú fara veðmál aftur í gang og byrjað er á þeim sem er gjafaranum á vinstri hönd (þeim blinda). Hægt er að passa, bjóða, sjá, hækka eða pakka.
Fjórða spilið
Gjafarinn brennir annað spil og setur á borðið fjórða spilið sem allir sjá.
Veðmálin hefjast í þriðja sinn og það er blindi maðurinn sem byrjar.
Fimmta spilið
Gjafarinn brennir annað spil og setur svo fimmta splið á borðið svo allir sjái.
Lokaveðmál og sigurvegarinn
Spilararnir geta nú notað hvaða samsetningu sem þeir vilja af þeim 7 spilum sem þeir sjá – fimm sem eru í borði og þau tvö sem þeir eru með á hendi – til að mynda bestu 5 spila póker höndina sem möguleg er. (sjá hér)
Fjórða og lokaumferð veðmála hefst nú og byrjar á blinda spilaranum. Sá sem bauð fyrstur lokaupphæðina þarf að sýna spilin sín og hinir þurfa eingöngu að sína spilin sín ef þeir vilja vinna hann.
Sá sem er með bestu höndina vinnur.
